Sjór flæddi í Víði

Víðir sat lengst fastur á stefninu, en gat kom á …
Víðir sat lengst fastur á stefninu, en gat kom á það neðan sjólínu. mbl.is/Ólafur Bernódusson

Það var strandveiðibáturinn Víðir ÞH 210 sem strandaði við Finnstaðanes norðan við Skagaströnd síðdegis í dag.

Víðir var á landleið úr róðri í en báturinn endaði uppi í grýttri fjöru og sat þar fastur, aðallega á stefninu. Björgunarskipið Húnabjörg var kallað út með mannskap úr björgunarsveitinni Strönd og náði hann Víði á flot um klukkan hálfsjö í kvöld. 

Húnabjörgin dró hann svo aftur á bak til Skagastrandar þar sem aflinn var hífður úr honum áður en hann var tekinn á þurrt. Ekki hefði verið óhætt að draga Víði mikið lengra því skemmdir á stefninu ollu því að sjór flæddi inn í hann og var hann orðinn töluvert siginn að framan er hann kom til hafnar.

Einn maður var um borð þegar slysið varð en hann er óslasaður.

Húnabjörg dró Víði á flot af strandstað.
Húnabjörg dró Víði á flot af strandstað. mbl.is/Ólafur Bernódusson
Eins og sjá má var Víðir orðinn töluvert siginn þegar …
Eins og sjá má var Víðir orðinn töluvert siginn þegar Húnabjörgin kom með hann til hafnar. mbl.is/Ólafur Bernódusson



mbl.is