Útflutningsverðmæti fiskeldisafurða námu rúmlega 3,2 milljörðum króna í júní samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti sem birtar voru í gær.
Um 67% aukningu í útflutningsverðmætum er að ræða, í krónum talið, ef miðað er við sama mánuð í fyrra.
Þetta kemur fram í fréttabréfi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Sé gengi íslensku krónunnar borið saman við sama tíma í fyrra var það rúmlega 4% sterkara í ár en árið áður. Aukning útflutningsverðmætanna í erlendri mynt er því alls 73%.
Júní í ár var stærsti júnímánuðurinn frá upphafi þegar litið er til útflutningsverðmæta fiskeldisafurða. Á fyrstu sex mánuðum ársins eru verðmætin orðin 18,8 milljarðar króna.