Íslendingar enn bara „dropi í hafið“

Sjókvíar Arnarlax í Tálknafirði.
Sjókvíar Arnarlax í Tálknafirði. Ljósmynd/mbl.is

Útflutn­ings­tekj­ur Norðmanna af lax­eldisaf­urðum sam­svöruðu árið 2020 þúsund millj­örðum ís­lenskra króna. 

Norðmenn fram­leiða og flytja mest út allra þjóða af lax­eldisaf­urðum og var árið 2020 einnig metár í fram­leiðslu og út­flutn­ingi þar sem 1,1 millj­ón tonna eldisaf­urða var flutt út. 

Til sam­an­b­urðar námu heild­ar­út­gjöld ís­lenska rík­is­ins á kór­óna­veiru­ár­inu 2020 alls um 990 millj­örðum króna. Útflutn­ings­verðmæti Norðmanna af eldisaf­urðum voru sömu­leiðis meiri árið 2020 held­ur en sam­an­lagðar tekj­ur Íslend­inga af vöru- og þjón­ustu­út­flutn­ingi. 

Þetta kem­ur fram í ný­legu frétta­bréfi Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, í sam­an­tekt und­ir fyr­ir­sögn­inni „Dropi í stóru hafi“ þar sem um­fang fisk­eld­is á Íslandi er borið sam­an við um­fang þess í Fær­eyj­um og í Nor­egi. 

Þar seg­ir að miðað við frétt­ir af stór­aukn­um út­flutn­ings­tekj­um Íslend­inga af fisk­eldi gæti fólk haldið að Ísland sé orðið um­svifa­mikið á heimsvísu í eldi lax­fiska, en svo sé ekki. 

Árið 2020 var líka metár í út­flutn­ingi á eldisaf­urðum frá Íslandi. Alls voru flutt út um 24 þúsund tonn frá Íslandi, sam­an­borið við 59 þúsund tonn frá Fær­eyj­um og 1,1 millj­ón tonna frá Nor­egi, sem áður var minnst á. Fisk­eldi í Nor­egi er því um fjöru­tíu og fimm­falt að um­fangi miðað við Ísland. 



mbl.is

Bloggað um frétt­ina