„Skatturinn vinnur skýrsluna fyrir okkur. Vinnan hefur því miður tekið lengri tíma en við héldum en það er verið að vinna við að ljúka þessu,“ segir Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri í Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Fyrr í dag var greint frá því að Hönnu Katrínu Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, væri farið að lengja eftir skýrslu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um eignarhald tuttugu stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi.
Beiðni um skýrsluna var samþykkt á þingfundi þann 18. desember og er almennur frestur ráðherra til þess að skila slíkri skýrslu tíu vikur. Fór Hanna Katrín fram á svör frá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um af hverju töfin stafar.
Kristján segist gera ráð fyrir að lítið sé eftir af vinnunni og stutt sé í að hægt sé að skila þinginu skýrslunni. „Ég held að það sé farið að styttast í þetta,“ segir Kristján.
„Þetta hefur verið mjög snúið. Við höfum upplýst þingið mjög reglulega um framvinduna vegna þess að við byggjum þetta algjörlega á vinnu Skattsins, sem er eina stofnunin sem getur unnið svona verkefni. En við gerum allt sem við getum til þess að klára þetta,“ segir Kristján.