Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum gengu síðustu tvær nætur þar prýðilega. Eitthvað var þó um hávaðakvartanir, þá ýmist í heimahúsum eða á tjaldsvæðum og um það að of margir væru saman komnir í samkvæmum.
„Veðrið er frábært og mér sýnist fólk bara vera glatt og að gleðjast saman eins og hægt er, auðvitað hefðu menn viljað Þjóðhátíð,“ segir Pétur Steingrímsson, varðstjóri hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum.
Pétur segir lögregluna hafa búist við því að eitthvað yrði um það að fólk væri að safnast saman og fagna verslunarmannahelginni með sínum eigin heima þjóðhátíðarhöldum.
„Við vissum alveg af því að það yrðu svona mini Heima-Þjóðhátíðir í húsgörðum hjá fólki þegar fjölskyldur, ættingjar og vinir koma saman en ég held að það hafi bara tekist bærilega,“ segir hann.
Fjölskyldur og vinir komu sér mörg hver upp þjóðhátíðartjöldum sínum og skemmtu sér saman í þeim. Grillveislur voru víða og samkomur sem hverfðust að mestu um matargerð í góðra vina hópi.
Mikið fjör var og vel lá á fólki er ljósmyndara mbl.is bar að garði. Það má segja að öryggið hafi verið fyrir öllu þar sem fyrir utan einhver tjöld mátti sjá sprittbrúsa.