„Sýnir ógeðfellda hlið sjókvíaeldis á Íslandi“

Fremsti hluti af kjaft laxins er horfinn. Verndarsjóður villtra laxastofna …
Fremsti hluti af kjaft laxins er horfinn. Verndarsjóður villtra laxastofna segir þetta sýna raunverulega hlið íslensks sjókvíaeldis. Ljósmynd/Aðsend

„Ný­legt mynd­efni kaj­akræðarans Veigu Grét­ars­dótt­ur, staðfest­ir að opið sjókvía­eldi sé tif­andi tímasprengja í ís­lensku um­hverfi og þjóðlífi,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá Vernd­ar­sjóði villtra laxa­stofna, North Atlantic Salmon Fund (NASF) á Íslandi.

Þá seg­ir að um­rætt mynd­efni „sýn­ir ógeðfellda hlið sjókvía­eld­is á Íslandi sem hef­ur fram að þessu verið hul­in al­menn­ingi, mikið særðan lax og óhrein­ar kví­ar en að auki hafi komið fram að mikið rusl ber­ist á land.“ Vís­ar sjóður­inn til mynda og mynd­banda sem fyrst voru sýnd í kvöld­frétt­um RÚV á laug­ar­dag.

Illa farinn lax úr íslenskri sjókví.
Illa far­inn lax úr ís­lenskri sjókví. Ljós­mynd/​Aðsend

Full­yrt er í til­kynn­ing­unni að ekki sé þannig að öll­um fiski úr sjókví­un­um sé slátrað. „Stór hluti deyr alltaf úr þrengsl­um, sjúk­dóm­um og sníkju­dýr­um án þess að neyt­end­ur hafi vitn­eskju um hví­lík­ar efna­laug­ar opn­ar sjókví­ar eru. Sem dæmi dráp­ust um 400.000 lax­ar í ís­lensk­um sjókví­um í júní á þessu ári og 1.350.000 lax­ar hafa drep­ist í sjókví­um það sem af er þessu ári.“

Þegar hef­ur borið á slysaslepp­ing­um og erfðablönd­un að sögn sjóðsins sem seg­ir slíkt geta út­rýmt villta laxa­stofn­in­um. Þá sé „aðeins ein leið eld­is á laxi [sem] trygg­ir viðgang nátt­úru og efna­hags­lífs“ og er bent á land­eldi. „Sjókvía­eldi er úr­eld og óum­hverf­i­s­væn fram­leiðsluaðferð. Nauðsyn­legt er því að banna lax­eldi í opn­um kví­um áður en orðspor Íslands sem upp­runa­land hreinna afurða lask­ast og er­lend­ar versl­an­ir loka á inn­flutn­ing á laxi vegna um­hverf­is- og dýra­vernd­un­ar­sjón­ar­miða.“

Hrognkelsi eru notuð gegn laxalús í sjókvíaeldi. Þessi fiskur hefur …
Hrogn­kelsi eru notuð gegn laxal­ús í sjókvía­eldi. Þessi fisk­ur hef­ur mist auga. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is

Bloggað um frétt­ina