Evrópska hitametið slegið á Sikiley

Hitamet var slegið í dag á Sikiley.
Hitamet var slegið í dag á Sikiley. AFP

Hita­met í Evr­ópu náðist á Sikiley á Ítal­íu í dag en hita­stig fór upp í 48,8 gráður. Fyrra met náðist í Aþenu í Grikklandi árið 1977 þegar hit­inn fór í 48 gráður. 

Háþrýsti­svæðið sem skek­ur nú Suður-Evr­ópu hef­ur fengið nafnið Lús­ífer og hafa yf­ir­völd á Ítal­íu því lýst yfir neyðarástandi. Bú­ist er við sér­stak­lega mikl­um hita í borg­um líkt og Róm á föstu­dag. 

Mikl­ir gróðureld­ar hafa geisað á Ítal­íu líkt og í fleiri ríkj­um við Miðjarðar­haf en eld­ar hafa sér­stak­lega haft áhrif á Sikiley og í Kala­bríu í suður­hluta lands­ins þar sem slökkviliðsmenn glíma við um 300 elda.

Frétt á vef BBC.

Miklir gróðureldar hafa geisað á Ítalíu.
Mikl­ir gróðureld­ar hafa geisað á Ítal­íu. AFP
mbl.is

Bloggað um frétt­ina