Benchmark Genetics hefur gert samninga um sölu á laxahrognum til nýrra landeldisstöðva í Japan og Singapúr og viðræður eru við fleiri stöðvar, meðal annars í Suður-Kóreu. Munu hrognin koma frá starfsstöð fyrirtækisins á Íslandi. „Alls staðar er áhugi á að færa eldið í landeldisstöðvar, nær mörkuðunum,“ segir Jónas Jónasson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins á Íslandi og framleiðslustjóri samstæðunnar.
Nokkur fyrirtæki eru að byggja landeldisstöðvar í Japan og segir Jónas að byrjað verði að afhenda hrogn þangað á næsta ári. Nú hefur verið kynntur samningur við nýja stöð í Singapúr og er áformað að hefja afhendingu hrogna þangað á síðari hluta næsta árs. Verið er að ljúka fjármögnun þess verkefnis en áformað er að stöðin framleiði þúsund tonn í fyrsta áfanga en möguleikar verði til stækkunar upp í þrjú þúsund tonn.
Jónas segir að víða sé áhugi á uppbyggingu landeldis. Nefnir hann að kórónuveirufaraldurinn hafi ýtt undir þá þróun að framleiðslan fari meira fram á mörkuðunum vegna þess að flutningsmöguleikar á afurðum hafi minnkað með samdrætti í farþegaflugi.
Hrognin eru sérstaklega framleidd fyrir landeldi. Þau eru af hreinum hrygnustofnum vegna þess að ótímabær kynþroski hænga er viðvarandi vandamál í framleiðslu á laxi í landeldisstöðvum.
Aðstaða Benchmark í Noregi er fullnýtt til framleiðslu hrogna fyrir Noregsmarkað og starfsstöð fyrirtækisins í Síle er ekki komin í full afköst. Stöð fyrirtækisins á Íslandi, sem áður var rekin undir merkjum Stofnfisks, er með stöðuga framleiðslu allt árið og getur skuldbundið sig til að afhenda laxahrogn til landeldisstöðva á 4-8 vikna fresti eins og sá rekstur krefst. Jónas nefnir að landeldisstöðvarnar séu komnar með svipaða framleiðsluferla og kjúklingabú, stöðugt sé lax í eldi og fiskinum slátrað jafnt og þétt fyrir markaðinn. Þá skemmir góð sjúkdómastaða í eldinu á Íslandi ekki fyrir. Hún gerir það að verkum að hægt er að selja hrogn héðan út um allan heim.
Jónas segir að mikil eftirspurn sé eftir laxi í heiminum og fyrirtækin leiti allra leiða til að framleiða meira. Svo virðist sem aukið sjóeldi anni ekki eftirspurn og því sé horft til landeldis. Telur hann að tæknimenn framleiðenda og stöðvanna séu smám saman að komast í gegnum þá byrjunarörðugleika sem verið hafa við stór vatnsendurnýtingarkerfi (RAS) í landeldisstöðvum.
Hann nefnir áform Samherja fiskeldis um byggingu stórrar landeldisstöðvar fyrir lax á Reykjanesi og að nýta við það þekkingu starfsmanna fyrirtækisins og aðstæður í Auðlindagarðinum. Benchmark mun útvega hrognin í stöðina. „Þetta er einhver jákvæðasta fréttin úr laxeldinu sem ég hef lengi séð,“ segir Jónas um áform Samherja fiskeldis.
Benchmark er að byggja sig upp til að geta sinnt vaxandi landeldi í heiminum og hér heima. Jónas reiknar með að á næsta ári muni útflutningur laxahrogna til landeldisstöðva aukast verulega og vaxa síðan jafnt og þétt á næstu tíu árum.
Fyrirtækið er að byggja nýtt hrognahús í Vogum á Vatnsleysuströnd og verður þar hægt að tvöfalda framleiðsluna. Í framhaldi af því er verið að undirbúa tvöföldun klakfiskaframleiðslunnar í Vogum og í stöð fyrirtækisins við Kalmanstjörn þar sem einnig eru framleidd laxahrogn. Framtíðaráform fyrirtækisins eru að framleiða þúsund tonn af klakfiski á Íslandi sem léttilega tvöfaldar framleiðslugetu Benchmark á Íslandi á næstu árum.