Eldisfyrirrækin sem starfa hér á landi hafa sammælst um að skerpa á verklagsreglum um eftirlit með velferð fiska í kvíum sínum, að því er fram kemur í yfirlýsingu á vef Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Ástæðan er sögn myndefni úr sjókvíum sem birt var síðastliðna helgi þar sem ástand laxfiska í sjókví á Vestfjörðum var bersýnilega mjög slæmt.
Í yfirlýsingunni er fullyrt að myndefnið sé ekki „lýsandi fyrir ástand fiska í kvíum við Ísland“ en að það sé samt sem áður svo að „myndirnar sýna það sem getur gerst þegar fiskur slasast.“
Þá segir að eðlilega hafi skapast töluverð umræða í kjölfar birtingu myndefnisins. „Við eldi á dýrum geta óhöpp og meiðsli átt sér stað. Því miður er erfitt að komast alveg hjá þeim. Þó gera fiskeldisfyrirtæki, hvort sem eldið er á sjó eða landi, allt sem þau geta til að vernda fiskinn enda er hann framleiðsluvara þeirra.“
Bendir SFS á að öllum fiskeldisfyrirtækjum hér á landi er skylt að tilkynna afföll til Matvælastofnunar og að það sé gert reglubundið. „Þessar tölur eru aðgengilegar á heimasíðu MAST. Starfsfólk í fiskeldi fylgist daglega með fiskum og seiðum í kvíum til að gæta að því að allt sé í lagi. Ætla má að enginn atvinnurekstur á Íslandi búi við jafn stranga eftirlitsumgjörð og fiskeldi. Þá taka alþjóðlegir vottunaraðilar reglulega út framleiðsluna til að viðhalda gæðum.“