Sæbjörg lagleg eftir andlitslyftingu

Björn Steingrímsson, verkefnisstjóri hjá Stálsmiðjunni Framtaki, og Sæbjörg í baksýn.
Björn Steingrímsson, verkefnisstjóri hjá Stálsmiðjunni Framtaki, og Sæbjörg í baksýn. Eggert Jóhannesson

Viðhaldsvinnu vegna endurbóta á skólaskipi Slysavarnaskólans, Sæbjörgu, er lokið í bili og var skipið sjósett í gær og því komið fyrir á sinn gamla stað við Austurbakka gömlu hafnarinnar í Reykjavík. Töluvert verk var að þrífa og búa skipið undir málningu, að því er fram kemur á Facebook-síðu skólans.

„Þetta gekk allt vel,“ segir Björn Steingrímsson, verkefnisstjóri hjá Stálsmiðjunni Framtaki, sem er hér á vettvangi á meðfylgjandi mynd.

Skólaskipið Sæbjörg.
Skólaskipið Sæbjörg. Eggert Jóhannesson

Sæbjörg fór í reglubundna slipptöku 9. ágúst sl. Var skipið botnhreinsað og teknir upp allir botn- og síðulokar auk þess sem skipið var málað að innan sem utan. Björn segir skipið einnig hafa verið þykktarmælt og að allt hafi verið eins og skyldi. „Bara alveg eins og nýtt,“ bætti hann við og hló.

Spurður hvort einhver hætta væri á að skip yltu þegar þau væru sjósett, sagði Björn litla hættu á því.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: