Eigandi undirbýr tilboð í eiganda

Laxi slátrað fyrir Arctic Fish í sláturhúsi Arnarlax á Bíldudal. …
Laxi slátrað fyrir Arctic Fish í sláturhúsi Arnarlax á Bíldudal. Hugsanlega geta fiskeldisfyrirtækin norsku sameinað krafta sína á komandi misserum. mbl.is/Helgi Bjarnason

Norski lax­eld­isris­inn SalM­ar, meiri­hluta­eig­andi Arn­ar­lax, hef­ur til­kynnt að gert verði til­boð í meiri­hluta hluta­bréfa í Norway Royal Salmon (NRS) sem á meiri­hluta hluta­fjár í Arctic Fish. Gangi þessi áform eft­ir má gefa sér að vest­firsku fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in sam­ein­ist í eitt í kjöl­far sam­ein­ing­ar eign­ar­halds móður­fé­lag­anna.

Norska fyr­ir­tækið NTS hef­ur verið að bæta við sig hluta­bréf­um í NRS og viljað ná meiri­hluta í fyr­ir­tæk­inu. Föstu­dag blandaði SalM­ar sér í bar­átt­una og til­kynnti að það myndi gera til­boð í hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu á tals­vert hærra verði en NTS býður og miklu hærra verði en hef­ur verið á markaði á und­an­förn­um vik­um. Til­boð SalM­ar verður háð því að það nái yf­ir­ráðum í fyr­ir­tæk­inu með kaup­um á að minnsta kosti helm­ingi hluta­fjár. Hags­mun­ir síðar­nefndu fyr­ir­tækj­anna liggja nokkuð sam­an í starf­semi í Norður-Nor­egi.

Veru­leg sam­legðaráhrif

SalM­ar á meiri­hluta hluta­fjár í Arn­ar­laxi en NRS á meiri­hlut­ann í Arctic Fish. Bæði vest­firsku fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in eru skráð á hluta­bréfa­markaði í kaup­höll­inni í Ósló í gegn­um norsk eign­ar­halds­fé­lög. Í til­kynn­ingu SalM­ar til kaup­hall­ar­inn­ar kem­ur fram að hugs­an­leg sam­ein­ing vest­firsku fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna muni hafa veru­leg sam­legðaráhrif í för með sér og gæti skapað mögu­leika á frek­ari upp­bygg­ingu.

Bæði fyr­ir­tæk­in eru í stækk­un­ar­ferli. Sem dæmi um sam­vinnu og sam­legð við sam­ein­ingu má nefna að öll­um laxi beggja fé­lag­anna er slátrað hjá Arn­ar­laxi á Bíldu­dal en for­stjór­ar fyr­ir­tækj­anna hafa verið að leita að nýj­um stað til að byggja upp sam­eig­in­legt slát­ur­hús sem gæti tekið við aukn­ingu. Þá eru fyr­ir­tæk­in með kví­ar í sömu fjörðum að hluta og bæði eru með um­sókn­ir um eld­is­leyfi í Ísa­fjarðar­djúpi.

Tvö í stað fjög­urra

Ef þessi kaup ganga eft­ir og dótt­ur­fé­lög­in á Íslandi verða sam­einuð munu verða tvö stór fyr­ir­tæki í sjókvía­eldi hér á landi í stað fjög­urra því unnið er að sam­ein­ingu fyr­ir­tækj­anna tveggja á Aust­fjörðum. Bæði fyr­ir­tæk­in yrðu að meiri­hluta í norskri eigu.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: