Steinpramminn er eins og fljótandi klettur í hafinu

Búið að merkja fóðurprammann Ice Fish Farm sem er móðurfélag …
Búið að merkja fóðurprammann Ice Fish Farm sem er móðurfélag Fiskeldis Austfjarða. Ljósmynd/ScaleAQ

Nýr öfl­ug­ur fóðurprammi er vænt­an­leg­ur til Aust­fjarða á næst­unni. Það þykir ekki tíðind­um sæta því með auknu sjókvía­eldi hér við land fjölg­ar fóður­prömm­un­um. Það sem er ný­stár­legt við þenn­an pramma sem Fisk­eldi Aust­fjarða hef­ur fest kaup á er að hann er stein­steypt­ur og get­ur staðið af sér stór­ar öld­ur, allt að 11 metra að hæð.

„Við ákváðum að prófa einn þannig pramma. Hann er eins og fljót­andi klett­ur og þolir verri veður en aðrir fóðurpramm­ar. Hann þarf minna viðhald og svo er hægt að vinna meira úti á svæðunum, geyma dót og annað,“ seg­ir Guðmund­ur Gísla­son, stjórn­ar­formaður Fisk­eld­is Aust­fjarða.

Sýnd­ur á Aqua Nor

Ekki hef­ur verið ákveðið hvort pramm­inn verði staðsett­ur í Fá­skrúðsfirði eða Beruf­irði en ljóst er að hann verður ut­ar­lega, þar sem mest mæðir á.

Pramm­inn er frá Sca­leAQ og ber 600 tonn af fóðri. Hann er 40 sinn­um 20 metr­ar að stærð. Steinpramm­inn er hannaður fyr­ir 5,5 metra stöðugt öldu­álag og í til­kynn­ingu frá fram­leiðand­an­um kem­ur fram að það þýði að hann geti tekið á sig ein­stak­ar öld­ur upp í 11 metra hæð.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: