Framkvæmdir hófust í morgun við Fossvogsskóla þar sem einingahús verða sett upp fyrir kennslu 1.-4. bekkjar en nemendur halda á meðan til í húsnæði Hjálpræðishersins.
Gröfur voru mættar á svæðið til að rýma fyrir einingarhúsunum sem eru þó einungis bráðabrigðalausn.
Eftir að í ljós kom að mygla væri enn til staðar í húsnæði Fossvogsskóla var ákveðið að kennsla haustsins myndi fara fram annarsstaðar en í húsnæði skólans.
Flutningur og uppsetning einingarhúsanna hefst í dag og hefur borgin sagt að búast megi við umferð stórra flutningabíla í nágrenni skólans næstu vikuna á milli klukkan 9 og 13.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði í samtali við mbl.is á þriðjudag, í sambandi við endurbætur á húsnæði Fossvogsskóla, að „stóra verkefnið“ væri á áætlun og hann ætti von á að fullhönnun liggi fyrir í næstu viku: „[...] það má segja að tíminn hafi verið nýttur í fjarlægingu asbestsins og því er nú lokið,“ sagði hann.