Íslenskur toppfótbolti, ÍTF, hefur sent frá sér tilkynningu vegna yfirlýsingar stjórnar Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, frá því í gær. Eftir að hafa fundað í gær er það mat ÍTF að yfirlýsing KSÍ gangi allt of skammt.
ÍTF eru hagsmunasamtök þeirra félaga sem reka lið í efstu deildum karla í knattspyrnu.
Í tilkynningu samtakanna er mælst til þess að KSÍ boði til auka ársþings samkvæmt lögum sambandsins þar sem bráðabirgðastjórn yrði kosin, sem sæti fram að næsta ársþingi.
Knattspyrnuhreyfingunni sé ekki unnt að samþykkja að núverandi stjórn KSÍ og framkvæmdastjóra sambandsins, Klöru Bjartmarz, sé stætt á að leiða vinnu við að laga þá hluti sem aflaga hafa farið innan þess.
Guðni Bergsson sagði af sér sem formaður KSÍ í gær en stjórn og framkvæmdastjóri hafa ákveðið að sitja áfram.
Tilkynning ÍTF í heild:
„Formannafundur ÍTF um málefni KSÍ var haldinn að kvöldi 29. ágúst 2021. Á fundinum fór stjórn ÍTF yfir atburði helgarinnar og yfirlýsingu stjórnar KSÍ sem send var út 29. ágúst. Það var samhljóma niðurstaða fundarins að yfirlýsing KSÍ gangi allt of skammt og nauðsynlegt sé að framkvæmdastjóri og stjórn axli sameiginlega ábyrgð.
Með það fyrir augum að endurbyggja traust innan knattspyrnuhreyfingarinnar og almennings gagnvart KSÍ er það mat ÍTF að boða þurfi til auka ársþings samkvæmt lögum KSÍ. Þar sem kosin verður bráðabirgðastjórn sem situr fram að næsta ársþingi sem haldið verður í febrúar 2022.
Framkvæmdastjóri KSÍ og hluti stjórnar hefur setið lengi og í ljósi stöðu sinnar bera þau ábyrgð á þeim málum sem til umfjöllunar hafa verið síðustu daga. Knattspyrnuhreyfingin getur ekki samþykkt að núverandi stjórn KSÍ og framkvæmdastjóri sambandsins muni leiða vinnu við að lagfæra þá hluti sem farið hafa aflaga og skoða frá grunni þá menningu sem við lýði er innan knattspyrnuhreyfingarinnar.“