Gat á sjókví með 120.000 löxum

Í Arnarfirði reyndist gat á einni sjókví Arnarlax. Ekki er …
Í Arnarfirði reyndist gat á einni sjókví Arnarlax. Ekki er vitað um strok úr kvínni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Gat á nótar­poka einn­ar sjókví­ar Arn­ar­lax við Haga­nes í Arnar­f­irði upp­götvaðist við neðan­sjáv­ar­eft­ir­lit og barst Mat­væla­stofn­un til­kynn­ing þess efn­is á mánu­dag, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef stofn­un­ar­inn­ar.

Um 120 þúsund lax­ar að meðal­stærð 0,8 kíló voru í um­ræddri kví og er ekki vitað hvort lax­ar hafi strokið úr kvínni að svo stöddu. Gatið var á tveggja metra dýpi og um það bil tveir sinn­um tveir metr­ar að stærð. Síðasta neðan­sjáv­ar­eft­ir­lit var fram­kvæmt 31. júlí og var nótar­pok­inn þá heill.

„Eft­ir­litsmaður Mat­væla­stofn­un­ar hef­ur skoðað aðstæður og viðbrögð fyr­ir­tæk­is­ins og er at­vikið til meðferðar hjá stofn­un­inni,“ seg­ir í til­kynn­ingu stofn­un­ar­inn­ar. Þar seg­ir jafn­framt að Arn­ar­lax hafi lagt út net í sam­ráði við Fiski­stofu til að kanna hvort strok hafi átt sér stað.

„Net­anna var vitjað síðdeg­is á mánu­dag og þriðju­dag. Á mánu­dag komu tveir fisk­ar í net­in sem reynd­ust að öll­um lík­ind­um sjó­birt­ing­ar og á þriðju­dag veidd­ist einn lax sem var rúm 2 kg. Fisk­arn­ir verða send­ir til Haf­rann­sókna­stofn­un­ar til grein­ing­ar.“

mbl.is