Norskir eigendur náðu ekki saman

Frá eldi Arctic Fish í Dýrafirði.
Frá eldi Arctic Fish í Dýrafirði. Ljósmynd/Ágúst Atlason

Hrær­ing­ar á norska hluta­bréfa­markaðnum síðastliðinn föstu­dag urðu til þess að ekki verður af því nú að eign­ar­hald stóru sjó­eld­is­fyr­ir­tækj­anna á Vest­fjörðum verði sam­einað. Hins veg­ar er kom­inn nýr eig­andi að meiri­hluta Arctic Fish.

Norsku fisk­eld­is­sam­steyp­urn­ar SalM­ar, sem er meiri­hluta­eig­andi að Arn­ar­laxi, og NTS, sem seldi frá sér Fisk­eldi Aust­fjarða í nóv­em­ber síðastliðnum, hafa að und­an­förnu bar­ist um að ná meiri­hluta hluta­fjár í Norway Royal Salmon (NRS) sem er eig­andi meiri­hluta hluta­fjár í Arctic Fish. Eft­ir drama­tísk­ar vend­ing­ar á hluta­bréfa­markaðnum síðastliðinn föstu­dag varð niðurstaðan sú að NTS náði und­ir­tök­un­um og á nú meira en tvo þriðju hluta­fjár.

Stjórn NRS hafði heim­ild til að auka hluta­fé til þess að stuðla að sam­ein­ingu sem tryggði hags­muni hlut­hafa. Á föstu­dags­morg­un­inn var hins veg­ar til­kynnt að hluti stjórn­enda fé­lags­ins hefði selt NTS hluta­bréf sín á háu verði og náði fyr­ir­tækið við það for­yst­unni í slagn­um.

Vinn­ur NTS nú að und­ir­bún­ingi þess að samþætta rekst­ur fyr­ir­tækj­anna tveggja. Ein af eign­um NRS og þar með hinn­ar nýju sam­stæðu er meiri­hluti hluta­bréfa í Arctic Fish.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: