Undirrituðu samning um þrjú ný skip

Undirritun samnings um nýsmíði á þremur björgunarskipum sem er mikilvægt …
Undirritun samnings um nýsmíði á þremur björgunarskipum sem er mikilvægt fyrsta skref á þeirri vegferð félagsins að endurnýja öll björgunarskipin í kringum landið. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar var sett í Silfurbergi í Hörpu í gær. Á sama tíma var undirritaður samningur um nýsmíði á þremur björgunarskipum sem er mikilvægt fyrsta skref á þeirri vegferð félagsins að endurnýja öll björgunarskipin í kringum landið.

Fulltrúar finnsku skipasmíðastöðvarinnar KEWATEC voru viðstaddir athöfnina ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra og Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Á myndinni er einnig Þór Þorsteinsson, formaður Landsbjargar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: