Bjarni og Árni í 7.000 sjómílna loðnuleiðangur

Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju í Hafnarfirði. Skipin hafa lagt af …
Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju í Hafnarfirði. Skipin hafa lagt af stað í loðnuleiðangur sem mun standa í rúmar tvær vikur. mbl.is/sisi

Áætlað er að rann­sókna­skip­in Árni Friðriks­son og Bjarni Sæ­munds­son sigli um 7.000 sjó­míl­ur í haust­leiðangri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar til rann­sókn­ar á loðnu sem hófst í gær. Árni Friðriks­son mun vera 19 daga á sjó en Bjarni Sæ­munds­son 17 daga.

Fram kem­ur í færslu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að „strax að lokn­um leiðangri og úr­vinnslu gagna verður gef­in út ný ráðgjöf um veiðar á loðnu fisk­veiðiárið 2021-2022 en jafn­framt verður um mánaðamót­in nóv­em­ber-des­em­ber gef­in ráðgjöf um upp­hafsafla­mark fyr­ir vertíðina 2022-2023“.

Áætlaðar leiðarlínur rannsóknaskipanna Bjarna Sæmundssonar (bláar línur) og Árna Friðrikssonar …
Áætlaðar leiðarlín­ur rann­sókna­skip­anna Bjarna Sæ­munds­son­ar (blá­ar lín­ur) og Árna Friðriks­son­ar (græn­ar lín­ur) við loðnu­rann­sókn­ir næstu þrjár vik­ur. Bú­ast má við að breyta þurfi leiðarlín­um og yf­ir­ferð til að aðlag­ast aðstæðum t.d. vegna haf­íss, veðurs og fleira. Mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Um er að ræða sam­starfs­verk­efni Íslands og Græn­lands og fer Bjarni Sæ­munds­son fyr­ir hönd Haf­rann­sókna­stofn­un­ar en Græn­lend­ing­ar hafa tekið Árna Friðriks­son á leigu.

„Meg­in­mark­miðið leiðang­urs­ins er mæl­ing á stærð veiðistofns (kynþroska loðna sem ætla má að komi til hrygn­ing­ar 2022) og mæl­ing á magni ung­loðnu (eins árs ókynþroska loðna sem verður uppistaðan í veiðistofni 2022-2023). Auk þess verða stundaðar um­hverf­is- og vist­fræðirann­sókn­ir í leiðangr­in­um sem snúa meðal ann­ars að því að skoða tengsl um­hverf­isþátta og haf­strauma við út­breiðslu og göng­ur loðnu ásamt því sem út­breiðsla og mergð svif­dýra verður skoðuð m.a. með til­liti til fæðuöfl­un­ar loðnu,“ seg­ir í færsl­unni.

Þá er rann­sókna­svæðið í vest­an­verðu Íslands­hafi, Græn­lands­sundi og suðvest­ur með land­grunni Græn­lands um 100 míl­ur vest­ur af Ang­mags­salik. Einnig verður farið norðaust­ur með græn­lenska land­grunn­inu norður að Shannon-eyju sem er við 75. breidd­ar­gráðu.

Hægt verður að fylgj­ast með staðsetn­ingu og ferli skip­anna í beinni.

mbl.is