Leita skútu sem var á leið til Grænlands

Skútan Laurel, en ekkert hefur spurst til hennar í tæplega …
Skútan Laurel, en ekkert hefur spurst til hennar í tæplega mánuð.

Landhelgisgæslan hefur undanfarna daga tekið þátt í alþjóðlegri leit og eftirgrennslan að hollenskri skútu sem hélt frá Vestmannaeyjum þann 8. ágúst áleiðis til syðsta hluta Grænlands, að því er talið er. Einn maður er um borð í skútunni og hefur ekki spurst til hans síðan hann hélt frá Vestmannaeyjum fyrir tæpum mánuði.

Takmarkaður fjarskiptabúnaður er um borð í skútunni, sem ber heitið Laurel, og enginn ferilvöktunarbúnaður. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að því hafi það reynst íslenskum og dönskum yfirvöldum ómögulegt að ná sambandi við manninn um borð. Varðskipið Þór og þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa svipast um eftir skútunni síðustu daga en án árangurs. Þá hafa flugvélar og bátar danska heraflans jafnframt leitað skútunnar suður og austur af Grænlandi.

Sjófarendur eru beðnir um að láta Landhelgisgæsluna vita ef þeir verða varir við skútuna. 

mbl.is