Met í útflutningi eldisafurða

Fiskeldi í Ísafjarðardjúpi.
Fiskeldi í Ísafjarðardjúpi. mbl.is/Helgi Bjarnason

Á fyrstu átta mánuðum árs­ins nam út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða 24,4 millj­örðum króna sem er tæp­lega helm­ings­aukn­ing frá sama tíma­bili í fyrra er það nam 16,4 millj­örðum. Fram kem­ur á Radarn­um að út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða hef­ur aldrei verið mer­ia á fyrstu átta mánuðum og voru þær 5,2% af heild­ar­verðmæti vöru­út­flutn­ings á tíma­bil­inu sem einnig er met.

Útflutn­ings­verðmæti eldisaf­urða í ág­úst nam 2,75 millj­örðum króna sem er 81% aukn­ing frá sama mánuði í fyrra, en á föstu gengi er aukn­ing­in 95% enda gengi krón­unn­ar 8% sterk­ara í ág­úst á þessu ári en á sama tíma í fyrra.

Ekki ligg­ur fyr­ir sund­urliðun í út­flutn­ingi en á Radarn­um er talið að „góðar lík­ur [séu] á því að aukn­ing­una megi rekja til eld­islax líkt og und­an­far­in miss­eri“.

mbl.is