Þrátt fyrir að ekki hafi tekist að leysa úr kjaradeilu sjómanna hafa Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og samtök sjómanna – Félag skipstjórnarmanna, Sjómannasamband Íslands og Félag vélstjóra og málmtæknimanna – tekið höndum saman til að vinna gegn brottkasti.
Um er að ræða gerð fræðsluefnis sem sett er fram í formi veggspjalds og smáforrits fyrir síma. Farið er yfir helstu atriði sem máli skiptir í að draga úr brottkasti á Íslandsmiðum undir slagorðinu „þetta er í okkar höndum“ og er fjallað um reglur, undanþágur og úrræði.
„Á undanförnum árum hafa sjónir manna í auknum mæli beinst að umgengni við hafið og hvernig auðlindir þess eru nýttar. Eitt af því sem þar kemur til skoðunar er brottkast á fiski, en meginreglan samkvæmt íslenskum lögum er sú, að það er óheimilt. Og ætíð ber að tryggja það að stofnar séu nýttir með forsvaranlegum og sjálfbærum hætti. Ýmsar leiðir eru útfærðar í lögum til þess að koma í veg fyrir brottkast og tryggja rétta skráningu og vigtun á sjávarafla. Fræðsluefninu er ætlað á hnykkja á þeim reglum er gilda,“ segir í færslu á vef SFS.
Þar segir að sjómenn, starfsfólk og stjórnendur sjávarútvegsfyrirtækja gegna lykilhlutverki í baráttunni gegn brottkasti. „Það er von þeirra sem standa að útgáfu fræðsluefnisins að veggspjöld verði hengd upp á áberandi stað í bátum og skipum og forsvarsmenn útgerða tryggi að starfsmenn kynni sér fræðsluefnið í smáforritinu.“