„Róbótinn er kærkomin viðbót“

Nýr þjarkur nýtist vel í landvinnslu Fisk Seafood á Sauðárkkróki.
Nýr þjarkur nýtist vel í landvinnslu Fisk Seafood á Sauðárkkróki. mbl.is

Nýr þjarkur var tekinn í notkun í síðustu viku í pökkunarhluta landvinnslu Fisk Seafood á Sauðárkróki. Þjarkurinn, sem er af gerðinni Bila Flex, notar sogskálar til að lyfta kössum og mun raða kössum með lokaafurð á bretti, setja hornalista á kassastæður og plasta þær.

„Róbótinn er kærkomin viðbót í tæknivæðinguna hjá okkur. Helsta verkefni hans er að raða 11 kílóa kössum á bretti í tólf hæðir auk þess að leggja millispjöld á milli raða. Hann sendir svo brettið í vafningsvél sem vefur brettið með strekkifilmu ásamt því að setja á það styrktarhorn. Uppsetningin og fyrstu dagarnir hafa gengið mjög vel,“ segir Ásmundur Baldvinsson, yfirmaður landvinnslu á Sauðárkróki, í færslu á vef útgerðarinnar.

mbl.is