Hótelið Mahali Mzuri í Kenía var kosið besta hótel í heimi í kosningu Travel and Leisure. 100 hótel komust á listann en Mahali Mzuri fékk einkunnina 99,73 af 100. Hótelið er hluti af Virgin Limited Edition sem er í eigu ferðamógúlsins Sir Richards Bransons.
Mahali Mzuri hótelið er staðsett í Masai Mara dýralífsgarðinum. Safaríferðir í Masai Mara eru afar vinsælar og þarf ekki að koma á óvart að nútímaleg safarítjöld Bransons þyki fullkominn dvalarstaður. Nálægt hótelinu eru dýr á borð við gírafa og ljón.
Hér fyrir neðan má sjá hvaða komust á topp tíu listann ásamt Mahali Mzuri.
2. Nayara Tented Camp þjóðgarðinum við eldfjallið Arenal í Kosta Ríka.
3. The Opposite House í Peking í Kína.
4. Capella Bangkok í Taíland.
5. Capella Ubud í Balí í Indónesíu.
6. Grace Hotel, Auberge Resorts Collection á Santorini í Grikklandi.
7. Kamalame Cay á Andros-eyju á Bahamaeyjum.
8. The Oberoi Udaivilas í Udaipur á Indlandi.
9. The Temple House á Chengdu í Kína.
10. The Oberoi í Nýju-Delí á Indlandi.