Vilja samtal um fiskeldi á Vestfjörðum

Vestfjarðarstofa heldur tvo fundi um fiskeldi í næstu viku. Fiskeldið …
Vestfjarðarstofa heldur tvo fundi um fiskeldi í næstu viku. Fiskeldið er orðin fyrirferðamikil atvinnugrein á Vestfjörðum. mbl.is/Helgi Bjarnason

Vest­fjarðastofa efn­ir til funda um fisk­eldi til efl­ing­ar sam­tals allra hags­munaaðila á Vest­fjörðum und­ir merkj­um „Framtíðar­sýn í fisk­eldi - þróun at­vinnu­grein­ar“.

„Mark­mið fund­anna er að fá sam­tal milli allra þeirra aðila sem koma að grein­inn, ríki, sveit­ar­fé­lög, stofn­an­ir, fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in, fy­ritæki í tengd­um grein­um og íbú­arn­ir,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá skipu­leggj­end­um.

Sveit­ar­fé­lög­in Bol­ung­ar­vík­ur­kaupstaður, Ísa­fjarðarbær, Stranda­byggð, Súðavík­ur­hrepp­ur, Tálkna­fjarðar­hrepp­ur og Vest­ur­byggð und­ir­rituðu sam­fé­lags­sátt­mála um fisk­eldi 15. júlí sem unnið var að í sam­starfi við Vest­fjarðastofu. „Til­gang­ur sátt­mál­ans er að standa sam­eig­in­lega að hags­m­un­gæslu í fisk­eldi og tengd­um at­vinnu­grein­um á Vest­fjörðum með að mark­miði að efla at­vinnu- og mann­líf með heild­ar­hags­muni Vest­fjarða að leiðarljósi,“ seg­ir á vef Vest­fjarðastofu.

Verður fyrri fund­ur­inn hald­inn 20. sept­em­ber í Fé­lags­heim­ili Pat­reks­fjarðar og seinni fund­ur­inn þriðju­dag­inn 21. sept­em­ber í Ed­in­borg­ar­hús­inu á Ísaf­irði. Fram kem­ur á vef Vest­fjarðar­stofu að fund­irn­ir verða opn­ir öll­um en vegna sótt­varna eru gest­ir beðnir um að skrá sig.

mbl.is