Segja mikinn dauðan fisk í kvíum fyrir austan

Dauðir eldisfiskar í Reyðarfirði.
Dauðir eldisfiskar í Reyðarfirði. Ljósmynd/Veiga Grétarsdóttir

Vernd­ar­sjóður villtra laxa­stofna hef­ur birt mynd­ir á vef sín­um sem sýna dauða eld­islaxa fljót­andi ofan á eldisk­ví­um í sjó á Reyðarf­irði. 

Veiga Grét­ars­dótt­ir kaj­akræðari tók mynd­irn­ar dag­anna 10. til 15. sept­em­ber eins og kem­ur fram í til­kynn­ingu frá sam­tök­un­um. 

Í til­kynn­ing­unni seg­ir að fisk­ur­inn á mynd­un­um sé rotn­andi, inn­an um lif­andi fisk sem ætlaður er til mann­eld­is. 

Fylgd­ist með úr fjarska

„Ég fylgd­ist með úr fjarska á föstu­deg­in­um og sá starfs­menn eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins dæla dauðum laxi úr kvínni í einn og hálf­an tíma og eins og sést á þess­um mynd­um þá er þetta hinn nöt­ur­legi raun­veru­leiki. Eft­ir helg­ina hafði þetta hins­veg­ar versnað enn meira.

Ég skil ekki að nokk­ur maður hafi lyst á að leggja sér eld­is­fisk úr þess­um kví­um til munns eða styðja svona fram­leiðslu. Þegar fisk­ur­inn drepst þarna er búið að reyna ým­is­legt en þarna er samt mikið magn af haus- og roðlaus­um úldn­andi fiski og all­an tím­an safn­ast upp meng­un í firðinum af þessu,“ er haft eft­ir Veigu Grét­ars­dótt­ur í til­kynn­ingu.

Veiga seg­ir enn­frem­ur að á þriðju­deg­in­um hafi þör­unga­blómi einnig farið vax­andi en ljóst má vera að laxa­dauðinn mun aukast enn frek­ar vegna þör­ung­anna.

Þörungablómi í Reyðafirði.
Þör­unga­blómi í Reyðafirði. Ljós­mynd/​Veiga Grét­ars­dótt­ir
Myndirnar tók Veiga daganna 10. til 15. september.
Mynd­irn­ar tók Veiga dag­anna 10. til 15. sept­em­ber. Ljós­mynd/​Veiga Grét­ars­dótt­ir
Ljós­mynd/​Veiga Grét­ars­dótt­ir
mbl.is

Bloggað um frétt­ina