Misstu rekstrarleyfi þar sem starfsleyfi skorti

Úr Skötufirði. Ekki verður af fyrirhugðu eldi.
Úr Skötufirði. Ekki verður af fyrirhugðu eldi. mbl.is/Árni Sæberg

Rekstr­ar­leyfi Arctic Sea Farm hf. (Arctic Fish) til eld­is á 200 tonn­um af laxi og regn­bogasil­ungi í Skötuf­irði hef­ur verið aft­ur­kallað af Mat­væla­stofn­un þar sem ekki hef­ur verið haf­inn rekst­ur inn­an tíma­marka, en það hef­ur ekki tek­ist að hefja starf­semi vegna þess að Um­hverf­is­stofn­un hef­ur ekki tekið af­stöðu til þess hvort fyr­ir­tækið fái starfs­leyfi í firðinum.

Úrsk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála hafnaði í síðasta mánuði kröfu Arctic Sea Farm hf.um að ógilda ákvörðun Mat­væla­stofn­un­ar frá 5. maí um að aft­ur­kalla rekstr­ara­leyfi fyr­ir fisk­eldi í Skötuf­irði og verður því rekstr­ar­leyfið aft­ur­kallað. Var ákvörðunin tek­in á grund­velli þess að starf­semi hafði ekki haf­ist inn­an þriggja ára frá út­gáfu leyf­is­ins. Rekstr­ar­leyfið var veitt Arctic Sea Farm hf. í fe­brú­ar 2016.

Fram kem­ur í úr­sk­urði úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála að Arctic Sea Farm ehf. bar meðal ann­ars fyr­ir sér að ekki hafi verið hægt að hefja rekst­ur þar sem starfs­leyfi hafði ekki feng­ist frá Um­hverf­is­stofn­un. Kvaðst fyr­ir­tækið hafa vilja til að hefja starf­semi en það hafi ekki gengið eft­ir þar sem „Um­hverf­is­stofn­un, og eft­ir at­vik­um Mat­væla­stofn­un, hafi svipt kær­anda mögu­leik­an­um á að hefja starf­semi með því að taka ekki end­an­lega, og þar með kær­an­lega, ákvörðun um út­gáfu starfs­leyf­is fyr­ir rekst­ur fisk­eld­is í Skötuf­irði.“

Vandi vegna starfs­leyf­is breyt­ir engu

Mat­væla­stofn­un er sögð hafa veitt fyr­ir­tæk­inu „skrif­leg­ar viðvar­an­ir og hæfi­leg­an frest til úr­bóta“ enda fékk það heilt ár í frest til að hefja starf­semi eft­ir að at­huga­semd­ir voru gerðar. Að lokn­um fresti felldi stofn­un­in rekstr­ar­leyfið úr gildi.

„Verður ekki annað séð en að stofn­un­in hafi við meðferð máls­ins fylgt skýr­um fyr­ir­mæl­um laga nr. 71/​2008 um aft­ur­köll­un rekstr­ar­leyf­is­ins að liðnum hlut­læg­um og lög­bundn­um tíma­frest­um. Breyta ástæður þess að starfs­leyfi hafi ekki feng­ist engu í þeim efn­um, enda sér Mat­væla­stofn­un ekki um út­gáfu þess held­ur Um­hverf­is­stofn­un á grund­velli laga nr. 7/​1998 um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varn­ir,“ seg­ir í úr­sk­urði nefnd­ar­inn­ar.

mbl.is