Stór fleki við Búðará kominn á hreyfingu

Stór fleki í jaðri skriðusársins við Búðará er kominn á …
Stór fleki í jaðri skriðusársins við Búðará er kominn á hreyfingu, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Ljósmynd/Björgunarsveitin Ísólfur

Stóri fleki í jaðri skriðusárs­ins við Búðará hef­ur verið á hreyf­ingu frá því á laug­ar­dag. Frá þessu er greint í færslu á face­booksíðu Veður­stofu Íslands í dag. Um er að ræða fleka sem varð eft­ir þegar stóra skriðan féll á þessu svæði í des­em­ber síðastliðnum, að sögn Esther­ar Hlíðar Jen­sen, of­an­flóðasér­fæðings hjá Veður­stofu Íslands.

„Það eru tveir spegl­ar staðsett­ir á þess­um fleka og við höf­um verið að mæla staðsetn­ingu þeirra á hálf­tíma fresti. Út frá þess­um mæl­ing­um höf­um við séð hreyf­ingu á spegl­un­um. Hreyf­ing­in er lít­il en nógu mik­il til að mæli­tæk­in okk­ar nemi hana.“

Rík­is­lög­reglu­stjóri lýsti í gær, í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Aust­ur­landi, yfir hættu­stigi al­manna­varna á Seyðis­firði vegna hættu á skriðuföll­um og var fjöldi húsa á svæðinu rýmd­ur í kjöl­farið.

Litl­ar lík­ur eru þó á að flek­inn fari af stað í dag, seg­ir Esther innt eft­ir því. Vatns­staða í bor­hol­um sem einnig eru í hlíðinni hafi farið lækk­andi frá því í gær sem dragi úr lík­un­um á að flek­inn fari af stað.

„Hins veg­ar er von á mik­illi úr­komu í vik­unni og þá þurf­um við að rýna mjög vel í stöðuna,“ seg­ir hún að end­ingu.

mbl.is