60% framleiðsluaukning í eldi Arctic Fish ehf.

Fiskedi Arctic Fish á Vestfjörðum hefur gengið vel að undanförnu …
Fiskedi Arctic Fish á Vestfjörðum hefur gengið vel að undanförnu og stefnir í að framleiðslan verði 12.000 tonn á árinu. Ljósmynd/Arctic Fish ehf.

Tölu­verð aukn­ing hef­ur verið í fram­leiðslu Arctic Sea Farm ehf., dótt­ur­fé­lag Arctic Fish ehf., og stefn­ir í að fram­leiðslu­magn árs­ins verði 12 þúsund tonn af laxi á ár­inu, en það er um 60% meira en í fyrra. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Fyr­ir­tækið er með sjókví­ar í Pat­reks- og Tálknafirði þar sem heim­ild er fyr­ir 7.800 tonna eldi og í Dýraf­irði þar sem fisk­eld­is­fyr­ir­tækið er með leyfi fyr­ir 10 þúsund tonn. Lax­inn er unn­inn í slát­ur­húsi Arn­ar­lax á Bíldu­dal en unnið er að því að kort­leggja tæki­færi sem fel­ast í bygg­ingu nýs slát­ur­húss á Vest­fjörðum sem myndi anna fram­leiðslu beggja fé­lag­anna.

„Eldið hef­ur gengið mjög vel síðast liðna mánuði. Sjáv­ar­hiti hef­ur verið hag­stæður og lif­un hef­ur verið með besta móti. Leyfi fé­lags­ins verða því full­nýtt í Dýraf­irði inn­an skamms. Til að létta á þeirri stöðu áður en farið er inn í vet­ur­inn og vegna þess að slát­ur­húsið á Bíldu­dal ann­ar ekki öllu því magni sem þarf að slátra nú á haust­mánuðum mun slát­ur­skipið Norweg­i­an Gann­et koma til lands­ins og slátra um 500 tonn­um af afurðum frá Hvanna­dal í Tálknafirði. Ekk­ert lát verður á vinnslu í slát­ur­hús­inu á Bíldu­dal sem er á full­um af­köst­um. Þar er slátrað þessi miss­er­in um 100 tonn­um á dag sex daga vik­unn­ar eða um 25.000 tonn­um af slægðum laxi á yf­ir­stand­andi ári,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Norweg­i­an Gann­et kom síðast til Íslands í fyrra til að aðstoða við slátrun lax úr sjókví­um í Arnar­f­irði vegna laxa­dauða í kjöl­far óveðurs sem gekk yfir landið.

mbl.is