Vilja banna íslenskan lax í Hollandi

Carola Schouten, sjávarútvegsráðherra Hollands, vill leita til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í …
Carola Schouten, sjávarútvegsráðherra Hollands, vill leita til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í þeim tilgangi að kortleggja leiðir til að beita Íslendinga viðskiptaþvínganir vegna makrílveiða. Ljósmynd/Rijksoverheid

Ráðherr­ar og þing­menn Þjóðarflokks fyr­ir frelsi og lýðræði (VVD) og sam­starfsaðila þeirra, Kristi­lega lýðræðis­hreyf­ing­in (CDA), í Hollandi hafa sagst vilja skoða mögu­leik­an á að beita Íslend­inga, Norðmenn og Fær­ey­inga viðskiptaþving­an­ir vegna út­gáfu veiðiheim­ilda í mak­ríl.

Fram kem­ur í um­fjöll­un blaðsins De Tel­egra­af að til skoðunar er að banna inn­flutn­ing á eld­islaxi frá ríkj­un­um þrem­ur í þeim til­gangi að refsa þeim fyr­ir að gefa út ein­hliða og „kerf­is­bundið“ kvóta í mak­ríl sem er um­fram ráðgjöf vís­inda­manna. Eng­inn samn­ing­ur er milli þeirra aðila sem veiða mak­ríl og eru Hol­lend­ing­ar bundn­ir af því magni sem fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­band­isns ákveður að út­gerðir aðild­ar­ríkj­anna fá að veiða.

Carola Schou­ten, sjáv­ar­út­vegs­ráðherra Hol­lands, kveðst ætla að krefjast þess að fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins skoði leiðir til að út­færa refsiaðgerðir gegn ríkj­un­um þrem­ur. Þá vill hún einnig að kort­lagt verði hvaða af­leiðing­ar þving­un­araðgerðir kunna að hafa fyr­ir fisk­vinnsl­ur í Hollandi, en þar er unnið tölu­vert af laxi og öðru inn­fluttu sjáv­ar­fangi.

Fiskiskip í höfninni í IJmuiden í Hollandi. Hollenskir sjómenn og …
Fiski­skip í höfn­inni í IJmui­den í Hollandi. Hol­lensk­ir sjó­menn og út­gerðar­menn telja Íslend­inga ásamt Norðmönn­um og Fær­ey­ing­um ganga á sinn hlut í mak­ríln­um. AFP

Íslend­ing­ar ekki aukið heim­ild­ir

Ólíkt Norðmönn­um og Fær­ey­ing­um sem hækkuðu út­gef­in kvóta í mak­ríl um 55% ákváðu ís­lensk stjórn­völd að hlut­deild ís­lenskra skipa yrði óbreytt. Alls hafa þau ríki er stunda mak­ríl­veiðar boðað að afla­heim­ild­ir verða gefna út sem eru 356 þúsund tonn um­fram vís­inda­lega ráðgjöf og hafa meðal ann­ars fransk­ar út­gerðir og sjó­menn kraf­ist þess að bann verði sett við inn­flutn­ing á þorski og mak­ríl frá Nor­egi.

Ekki er ljóst með hvaða hætti stjórn­mála­menn frjáls­lynda íhalds­flokks­ins VVD og hægri­flokk­isns CDA hyggj­ast fram­fylgja þess­um orðum sín­um enda í gildi samn­ing­ar um viðskipti ríkj­anna þriggja og Evr­ópu­sam­bands­ins.

Ekki trú­verðugt

Trond Dav­idsen, aðstoðarfram­kvæmda­stjóri sam­taka fram­leiðenda sjáv­ar­af­urða í Nor­egi (Sjømat Nor­ge), kveðst í sam­tali við iLaks ekki hafa mikl­ar áhyggj­ur af mál­inu. „Ég held að lax­fram­leiðend­ur í Nor­egi, Fær­eyj­um eða Íslandi missi ekki svefn yfir þessu.“ Hann seg­ir yf­ir­lýs­ing­arn­ar ótrú­verðugar og ef­ast um að þessi áform hafi laga­stoð.

„Ég tek eft­ir því að ráðherr­ann (Schou­ten) tel­ur vinnsl­urn­ar fyr­ir lax í Hollandi mik­il­væga þátt,“ seg­ir Dav­idsen og bæt­ir við að sá þátt­ur hafi lík­lega mik­il áhrif á fram­vindu máls­ins.

Trond Davidsen, aðstoðarframkvæmdastjóri samtaka framleiðenda sjávarafurða í Noregi (Sjømat Norge)
Trond Dav­idsen, aðstoðarfram­kvæmda­stjóri sam­taka fram­leiðenda sjáv­ar­af­urða í Nor­egi (Sjømat Nor­ge) Ljós­mynd/​Sjømat Nor­ge
mbl.is