Samherji boðar mikla uppbyggingu í Öxarfirði

Landeldisstöð Samherja í Öxarfirði verður stækkuð um helming og er …
Landeldisstöð Samherja í Öxarfirði verður stækkuð um helming og er áætlað að framleiðslan fari í 3.000 tonn. Ljósmynd/Samherji

Stjórn Sam­herja fisk­eld­is hef­ur ákveðið að stækka land­eld­is­stöð fé­lags­ins í Öxarf­irði um helm­ing og er stefnt að því að fram­leiðslan verði um þrjú þúsund tonn af laxi á ári. Áætlaður kostnaður við áformin er einn og hálf­ur millj­arður króna, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef Sam­herja.

Þar seg­ir að gert sé ráð fyr­ir land­græðslu og síðar skóg­rækt á nær­liggj­andi jörð „sem hluti af hringrás­ar­hag­kerfi eld­is­ins, bættri nýt­ingu og kol­efnis­jöfn­un.“

Um nokk­urt skeið hef­ur fyr­ir­tækið haft í skoðun mögu­leika til stækk­un­ar á eld­is­stöðinni í Öxarf­irði og er haft eft­ir Jóni Kjart­ani Jóns­syni, fram­kvæmda­stjóra Sam­herja fisk­eld­is ehf.,  að fram­kvæmd­ir munu hefjast á næst­unni en fyrst þurfi að ganga frá skipu­lags­mal­um sem eru á loka­stigi.

„Þetta er nokkuð um­fangs­mikið verk­efni. Ker­in sem við byggj­um verða alls fimm vegna stækk­un­ar­inn­ar, um helm­ingi stærri að um­fangi en stærstu ker sem fyr­ir eru. Þá þarf að auka sjó­töku, byggja hreinsimann­virki, stoðkerfi og koma fyr­ir ýms­um tækja­búnaði. Und­ir­bún­ings­vinnu er nú að mestu lokið, leyf­in eru að klár­ast og næst er að hefjast handa,“ seg­ir Jón Kjart­an.

Tölvugerð mynd af laxeldisstöðinni eftir stækkun
Tölvu­gerð mynd af lax­eld­is­stöðinni eft­ir stækk­un Mynd/​Sam­herji

Tengj­ast áform­um á Reykja­nes­inu

Sam­herji er eig­andi lóðar­inn­ar í Öxarf­irði þar sem starf­sem­in fer fram og hef­ur einnig fest kaup á jörðinni Ak­ur­sel. Fyr­ir­hugað er að nýta áburð frá stöðinni til land­græðslu og síðar skóg­rækt­ar á jörðinni.

„Sam­herji áform­ar að byggja upp allt að 40.000 tonna land­eldi á laxi á Reykja­nesi á næstu árum og þessi stækk­un í Öxarf­irði teng­ist þeim áform­um. Það má segja að stækk­un­in fyr­ir norðan sé á viss­an hátt und­an­fari þessa stóra verk­efn­is okk­ar á Reykja­nesi. Við ætl­um að prófa nýja hluti og í stærri ein­ing­um en áður og nýta þá reynslu við hönn­un og rekst­ur á nýju stöðinni,“ út­skýr­ir fram­kvæmda­stjór­inn.

Jón Kjart­an tel­ur stækk­un stöðvar­inn­ar í Öxarf­irði hafa já­kvæð áhrif á nærsam­fé­lagið. „Með helm­ingi stærri stöð eykst um­fangið að sama skapi. Störf­um fjölg­ar, aðflutn­ing­ar til og frá stöðinni munu aukast og þörf á aðkeyptri þjón­ustu til rekstr­ar­ins verður meiri. Þetta efl­ir sam­fé­lagið og und­ir­strik­ar jafn­framt trú okk­ar á land­eldi og að Öxar­fjörður­inn sé hent­ug­ur staður fyr­ir slíka at­vinnu­starf­semi.“

Mynd/​Sam­herji
mbl.is

Bloggað um frétt­ina