Brýnt sé að endurskoða gjaldtöku af fiskeldi

Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi, segir ekki nóg …
Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi, segir ekki nóg af innheimtum gjöldum af fiskeldi skila sér til sveitarfélaga. Ljósmynd/Framsóknarflokkurinn

„Sveit­ar­fé­lög eiga ekki að þurfa að sækja um í sam­keppn­is­sjóð til að byggja upp eins og nauðsyn­legt er til þess að há­marks­ábati af fisk­eldi skili sér,“ skrif­ar Halla Signý Kristjáns­dótt­ir, þingmaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í aðsendri grein í Morg­un­blaðinu í dag.

Hún kveðst telja brýnt að end­ur­skoðuð verði gjald­taka af fisk­eldi hér á landi þannig að tekj­ur hin op­in­bera skili sér í aukn­um mæli til þeirra sveit­ar­fé­laga þar sem fisk­eldi er stundað. „Það þarf ekki að snúa að auk­inni gjald­töku held­ur þarf að tryggja að tekj­ur af slíkri gjald­töku standi und­ir nauðsyn­leg­um verk­efn­um þeirra sveit­ar­fé­laga sem standa næst eld­inu.

Afstaða Höllu Sig­nýj­ar er í takti við þau sjón­ar­mið sem meðal ann­ars bæj­asr­stjóri Vest­ur­byggðar hef­ur viðrað enda þurfti það sveit­ar­fé­lag að grípa til um­fangs­mik­illa fjár­fest­inga til að skapa fisk­eld­inu rými.

Meira til Aust­fjarða en Vest­fjarða

Þá gagn­rýn­ir Halla Signý að sveit­ar­fé­lög á Aust­fjörðum hafi fengið mun meira úr fisk­eld­is­sjóði en sveit­ar­fé­lög á Vest­fjörðum þar sem mun meira er fram­leitt af eldisaf­urðum. Fengu vest­firsk sveit­ar­fé­lög út­hlutað 34 millj­ón­um króna en aust­firsk 70 millj­ón­ir. „Það er ljóst út frá þess­ari út­færslu að sveit­ar­fé­lög geta ekki gert raun­hæfa fjár­hags­áætl­un eða fram­kvæmda­áætl­un með hliðsjón af starf­semi at­vinnu­grein­ar­inn­ar eins og hægt er að gera út frá öðrum grein­um sem stundaðar eru á svæðinu.“

Hægt er að lesa grein Höllu Sig­nýj­ar í Morg­un­blaðinu í dag eða hér.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: