Skoða ástand síldarstofnsins

Bjarni Sæmundsson HF-30.
Bjarni Sæmundsson HF-30. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Rann­sókna­skipið Bjarni Sæ­munds­son lagði frá bryggju 20. októ­ber og hóf með því sjó­rann­sókna- og síld­ar­leiðang­ur. Skipið er nú statt norður af Gríms­ey.

Til stend­ur að fram­kvæma mæl­ing­ar á hita og seltu sjáv­ar á rúm­lega 70 stöðum um­hverf­is landið ásamt því að taka sýni til rann­sókna á efna­fræði sjáv­ar­ins, meðal ann­ars í þeim til­gangi að afla upp­lýs­inga um súrn­un sjáv­ar.

Rann­sókn­irn­ar eru á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar sagðar hluti af lang­tíma­vökt­un á um­hverf­is­skil­yrðum í haf­inu við Ísland.

Fram kem­ur að mælisniðin séu staðsett þannig að mælt er í þeim sjógerðum sem finn­ast um­hverf­is landið og þau ná yfir land­grunnið og fram yfir land­grunns­brún. Botn­dýpi á stöðvun­um er á bil­inu 25 metr­ar til 1.830 metr­ar.

Bergmálsmælingar eru mikilvægur þáttur í mælingunum.
Berg­máls­mæl­ing­ar eru mik­il­væg­ur þátt­ur í mæl­ing­un­um. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un/​Eygló Ólafs­dótt­ir

Rann­saka síld­ina

Rann­sókn­ir á ís­lenska sum­argots­s­íld­ar­stofn­in­um hefjast á seinni hluta leiðang­urs­ins og nær rann­sókna­svæði leiðang­urs­ins frá Aust­ur­miðum að Reykja­nesi, en síld­in sem hef­ur vet­ur­setu vest­an við landið verður mæld í mars.

Mark­mið þess­ara rann­sókna er að kort­leggja „stærð og ár­ganga­skip­an stofns­ins með berg­máls­mæl­ing­um og sýna­töku. Einnig stend­ur til að meta ástand síld­ar­inn­ar með til­liti til icht­hyoph­onus-sýk­ing­ar sem hef­ur herjað á stofn­inn síðan 2008“.

Icht­hyoph­onus er frum­vera sem lengi var tal­in svepp­ur en á tí­unda ára­tug kom í ljós að þetta sníkju­dýr er hvorki dýr, jurt né svepp­ur. Frum­ver­an hef­ur þó erfðaefni sem er skylt svepp­um og dýr­um.

Taln­ing hvala

„Berg­máls­mæl­ing­ar á full­orðna hluta síld­ar­stofns­ins og afla­gögn leggja grunn að stofn­mati og veiðiráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar fyr­ir sum­argots­s­íld. Sam­fara síld­ar­leit­inni verður gerð taln­ing, skrán­ing og mynda­taka á hvöl­um eins og aðstæður leyfa. Þess­ar rann­sókn­ir eru m.a. liður í doktor­s­verk­efni við Há­skóla Íslands sem bein­ist að dreif­ingu og fæðuat­ferli há­hyrn­inga,“ seg­ir á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: