Brugðist við álitamálum

Fiskeldi í Ísafjarðardjúpi.
Fiskeldi í Ísafjarðardjúpi. mbl.is/Helgi Bjarnason

At­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneytið, í sam­vinnu við Haf­rann­sókna­stofn­un, hef­ur ákveðið að vinna um­hverf­is­mats­skýrslu fyr­ir burðarþols­mat og áhættumat erfðablönd­un­ar í fisk­eldi á Aust­fjörðum og Vest­fjörðum í sam­ræmi við ný lög um um­hverf­is­mat fram­kvæmda og áætl­ana. Skýrsl­una er að finna í sam­ráðsgátt stjórn­valda og er um­sagn­ar­frest­ur til 6. des­em­ber.

Fram kem­ur í skýrsl­unni að þetta sé gert í kjöl­far niður­stöðu úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála og álits Skipu­lags­stofn­un­ar. Í áliti frá því fyrr í þess­um mánuði, sem vísað er til, komst Skipu­lags­stofn­un að því að burðarþols­mat og áhættumat erfðablönd­un­ar séu háð um­hverf­is­mati áætl­ana.

Hins veg­ar er vísað til þess að úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála felldi úr gildi rekstr­ar­leyfi Laxa fisk­eld­is í vor vegna aukn­ing­ar eld­is í Reyðarf­irði. Var leyfið sagt haldið veru­leg­um ann­mörk­um hvað varðaði stærð seiða og mat á um­hverf­isáhrif­um.

Í inn­gangi um­hverf­is­mat­skýrsl­unn­ar í sam­ráðsgátt seg­ir að „niðurstaða um­hverf­is­mats­ins leiðir ekki til breyt­inga á burðarþols­mati og áhættumati Haf­rann­sókna­stofn­un­ar­inn­ar, en vís­ar þó til mót­vægisaðgerða og vökt­un­ar sem mik­il­vægt er að fylgja til að draga úr nei­kvæðum um­hverf­isáhrif­um sjókvía­eld­is. Miðað er við að Haf­rann­sókna­stofn­un geri viðauka við um­hverf­is­mats­skýrsl­una þegar koma til breyt­ing­ar á burðarþols­mati og áhættumati.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: