Gilt atkvæði í bunka merktum auðum atkvæðum

Eitt gilt atkvæði fannst í bunka með auðum atkvæðum.
Eitt gilt atkvæði fannst í bunka með auðum atkvæðum. mbl.is/Árni Sæberg

Gilt at­kvæði fannst í bunka sem merkt­ur var auðum at­kvæðum. Þetta upp­götvaðist í  vett­vangs­ferð und­ir­bún­ings­nefnd­ar fyr­ir rann­sókn kjör­bréfa, til Borg­ar­ness á miðviku­dag.

„Já það gerðist. Fyrst þetta er komið út þá get ég staðfest að það hafi gerst,“ seg­ir Björn Leví Gunn­ars­son, þingmaður Pírata, í sam­tali við mbl.is en Björn sit­ur í und­ir­bún­ings­nefnd­inni. Stund­in greindi fyrst frá.

Til­gang­ur vett­vangs­ferðar­inn­ar beind­ist einna helst að auðum seðlum sem breytt­ust í ógilda seðla í end­urtaln­ingu yfir­kjör­stjórn­ar en þá fylgd­ist nefnd­in með því þegar ónotaðir at­kvæðaseðlar voru tald­ir að nýju og stemmd­ir af við þær töl­ur sem til­kynnt­ar voru til lands­kjör­stjórn­ar. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina