Undirrituðu samstarfssamning Hafró og Matís

Þorsteinn Sigurðsson og Oddur M. Gunnarsson við undirritun samningsins.
Þorsteinn Sigurðsson og Oddur M. Gunnarsson við undirritun samningsins. Ljósmynd/MATÍS

Þor­steinn Sig­urðsson, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, og Odd­ur M. Gunn­ars­son, for­stjóri Matís, skrifuðu í vik­unni und­ir sam­starfs­samn­ing sem ætlað er að styrkja og efla sam­starf stofn­an­anna um rann­sókn­ir og sam­nýt­ingu innviða, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Fram kem­ur að von­ir séu um að sam­komu­lagið muni tryggja aðgengi að rann­sóknainnviðum og auka sam­starf og að í því fel­ist tæki­færi fyr­ir báða aðila. Vísað er meðal ann­ars til örar þró­unn­ar á sviði fisk­eld­is, erfðafræði og um­hverf­is­breyt­inga á Norður­slóðum.

„Gott sam­starf stofn­an­anna hef­ur um lang­an tíma átt sér stað, allt frá þeim árum sem þær deildu sam­an hús­næði að Skúla­göu 4 í Reykja­vík. Þá hef­ur einnig mik­il og góð sam­vinna átt sér stað milli Matís og Sjáv­ar­út­vegs­skóla GRÓ sem Haf­rann­sókna­stofn­un heft­ur hýst í fjölda ára. Samn­ing­ur­inn form­fest­ir það góða sam­starf auk þess að skapa frek­ari tæki­færi í rann­sókn­um hafs og vatna,“ seg­ir í til­kynnign­unni.

mbl.is