Verði þau verkefni um landeldi sem nú eru í undirbúningi eða byrjunarfasa framkvæmda að veruleika verður hægt að framleiða nokkuð yfir 100 þúsund tonn af laxi á ári. Það mun gerast á löngum tíma því framkvæmdir eru í flestum tilvikum áfangaskiptar. Til samanburðar má geta þess að áætlað er að framleidd verði um 40 þúsund tonn af laxi í sjókvíastöðvunum í ár, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Uppbygging landeldis er fjárfrek og þarf að fjárfesta fyrir eitthvað á annað hundrað milljarða til þess að skapa aðstöðu og lífmassa til að uppskera þann lax sem hér er rætt um.
Mikil uppbygging er í landstöðvum fyrir laxeldi vestan Þorlákshafnar. Framkvæmdir eru hafnar á lóð eins fyrirtækisins og tvö fyrirtæki til viðbótar eru á fyrstu stigum umhverfismats. Samherji fiskeldi er að hefja stækkun á landeldisstöð sinni í Öxarfirði og vinnur á fullu að undirbúningi Eldisgarðs við Reykjanesvirkjun.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir að mikill áhugi sé á lóðum fyrir landeldisstöðvar. „Þessi starfsemi reynir mikið á auðlindirnar þótt við séum ekki að nálgast neitt þak,“ segir hann og getur þess að ef þrjú til fjögur verkefni verði að veruleika aukist vatnsnotkun í og við Þorlákshöfn úr 4 þúsund lítrum á sekúndu í 38 þúsund lítra. Það er þrjátíuföld notkun á höfuðborgarsvæðinu.