Árið 2021 hefur gengið vel hjá laxeldisfyrirtækinu Arctic Fish samkvæmt þriðja ársfjórðungsuppgjöri og nam samanlögð framlegð fyrstu þrjá ársfjórðunga um 1,7 milljarða króna og hagnaður félagsins á sama tíma 1,8 milljarða, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Á fyrstu níu mánuðum þessa árs hefur Arctic Fish slátrað 8.542 tonnum af laxi sem er meira en félagið hefur hingað til gert á heilu ári og stefnir í að framleiðsla ársins nái 11.500 tonnum.
Fram kemur í tilkynningunni að heildarvelta fyrstu þriggja ársfjórðunganna er um 6,4 milljarðar króna og að verð á laxi hafi skilað góðri afkomu en meðal skilaverð á seldum afurðum var 825 krónur á kíló og nam salan í fjórðungnum 2,4 milljörðum króna.
Framlegð af eldinu var um 159 krónur á selt kíló á þriðja ársfjórðungi sem er besta framlegð á kíló sem náðst hefur innan fjórðungs á árinu. Framlegð á fjórðungnum var rúmlega 400 milljónir króna, 180 milljónum krónum hærri framlegð en á öðrum ársfjórðungi.