Fyrsti pramminn í Djúpið

Gauti Geirsson framkvæmdastjóri Háafells
Gauti Geirsson framkvæmdastjóri Háafells Ljósmynd/Aðsend

Háa­fell hef­ur fest kaup á fóðurpramma vegna fyr­ir­hugaðs lax­eld­is í Ísa­fjarðar­djúpi. Fyrstu laxa­seiðin fara í kví­ar í ut­an­verðum Skötuf­irði í byrj­un maí og pramm­inn kem­ur til lands­ins í júní.

Háa­fell er dótt­ur­fyr­ir­tæki Hraðfrysti­húss­ins – Gunn­var­ar og hef­ur fengið leyfi til lax­eld­is í Ísa­fjarðar­djúpi. Laxa­kví­arn­ar verða sett­ar niður í ut­an­verðum Skötuf­irði í vet­ur og vor. Seiðin eru alin í seiðastöð fyr­ir­tæk­is­ins á Nauteyri og verða þau til­bú­in til út­setn­ing­ar í vor, um hálf millj­ón seiða.

Fóðurprammarnir frá Akva group hafa reynst vel hér við land. …
Fóðurpramm­arn­ir frá Akva group hafa reynst vel hér við land. Næsta sum­ar verða ell­efu pramm­ar frá þeim í notk­un við Ísland. Mynd/​Akva Group

Nauðsyn­legt fyr­ir ár­ang­ur

Fóðurpramm­inn sem Háa­fell kaup­ir er frá Akva group í Nor­egi. „Fóðurprammi er nauðsyn­leg­ur til að ná há­marks­ár­angri í fóðrun og rekstri sjókvía­eld­is­stöðva. Mynda­vél­ar í kví­un­um eru tengd­ar pramm­an­um og ljós til að stýra kynþroska. Fóðrun úr pramm­an­um er fjar­stýrt úr landi sem er hent­ugt ef ekki er hægt að kom­ast út í pramm­ann vegna veðurs og því fóðrað alla daga,“ seg­ir Gauti Geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Háa­fells.

Þótt lax­eldið sé í minni kant­in­um í upp­hafi mun það aukast þar til leyfi fyr­ir­tæk­is­ins til að fram­leiða um 6.800 tonn af laxi verður full­nýtt og mun fóðurpramm­inn geta annað þeirri fram­leiðslu.

Fóðurprammi af þess­ari gerð kost­ar um 350 millj­ón­ir króna með öll­um búnaði. Hann verður tengd­ur við raf­magn úr landi og er Háa­fell í sam­starfi við Orku­bú Vest­fjarða og Eflu við að koma þeirri teng­ingu á. Gauti seg­ir gleðilegt að það skuli vera hægt. „Þetta fyr­ir­komu­lag spar­ar mikla olíu og við losn­um við olíu­flutn­inga út á pramm­ann. Þetta er mun um­hverf­i­s­vænna, eins og vera ber,“ seg­ir Gauti.

Íslensku fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in hafa keypt marga fóðurpramma frá Akva group. Næsta sum­ar verða ell­efu slík tæki, af mis­mun­andi stærðum, í notk­un hér á landi.

Háa­fell er með eldi á regn­bogasil­ungi og hefst slátrun úr kví­um í Álftaf­irði í næstu viku. Verður unnið að því næstu 2-3 mánuði og slátrað verður upp úr öðrum kví­um á næsta ári. Regn­bog­an­um verður slátrað í aðstöðu Háa­fells í Súðavík og megnið af hon­um fryst í sam­vinnu við Klofn­ing á Suður­eyri.

Slátrun á laxi hefst síðan á ár­inu 2023 og má þá bú­ast við að 1.500 til 2.000 tonn af afurðum komi upp úr kví­un­um, ef eldið geng­ur að ósk­um, að sögn Gauta.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: