Nýr loftslagssamningur samþykktur

Samkomulag náðist í Glasgow fyrir stundu.
Samkomulag náðist í Glasgow fyrir stundu. AFP

All­ir leiðtog­ar aðild­ar­ríkja Sam­einuðu þjóðanna samþykktu nú fyr­ir stundu nýj­an lofts­lags­samn­ing á COP26 lofts­lags­ráðstefn­unni í Glasgow.

Er þetta fyrsti lofts­lags­samn­ing­ur­inn þar sem skýrt er kveðið á um að draga úr kola­notk­un. Orðalagið var hins veg­ar tónað niður að kröfu Ind­lands og Kína á loka­metr­un­um og breytt úr því að kola­notk­un yrði hætt í áföng­um í að dregið yrði úr henni. Marg­ir urðu fyr­ir von­brigðum með þessa breyt­ingu en hún var samþykkt til að vernda önn­ur mik­il­væg ákvæði.

Vís­inda­menn vilja meina að þær aðgerðir sem voru samþykkt­ar dugi skammt til að sporna við hlýn­un jarðar. En ákveðið var að mark­miðið væri að halda hlýn­un jarðar und­ir 1,5 til 2 gráður, líkt og Par­ís­arsátt­mál­inn kveður á um.

Ant­onio Guter­res, aðal­rit­ari Sam­einuðu þjóðanna, seg­ist sátt­ur við að sam­komu­lag hafi náðst en þetta sé hins veg­ar ekki nóg. „Við erum enn á barmi stór­slyss í lofts­lags­mál­um,“ sagði hann eft­ir að samn­ing­ur­inn var samþykkt­ur.

Alok Sharma, for­seti COP26 var tár­vot­ur um aug­un þegar þegar niðurstaðan var ljós og baðst af­sök­un­ar því hvernig mál­in hefðu þró­ast.

mbl.is