Dregur úr möguleika á vinnslu á Flateyri

Smá ís er enn settur í kassana, að ósk kaupanda, …
Smá ís er enn settur í kassana, að ósk kaupanda, í sláturhúsi Arnarlax. Búið er að kæla fiskinn með ofurkælingu svo óþarft er að ísa mikið. mbl.is/Helgi Bjarnason

Þótt stóru lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in á Vest­fjörðum hafi ekki gefið út hvar þau hyggj­ast byggja upp sam­eig­in­legt laxaslát­ur­hús og vinnslu virðast öll vötn falla til Pat­reks­fjarðar í því efni. Fyr­ir hef­ur legið að fyr­ir­tæk­in töldu Flat­eyri og Pat­reks­fjörð helst koma til greina en áhætta við upp­bygg­ingu á Flat­eyri dreg­ur úr mögu­leik­um þess staðar vegna and­stöðu eig­anda að hús­næði sem ligg­ur að fast­eign­um Arctic Fish á staðnum.

Arn­ar­lax rek­ur slát­ur­hús og vinnslu á Bíldu­dal og slátr­ar einnig fyr­ir hitt stóra lax­eld­is­fyr­ir­tækið, Arctic Fish. Vegna auk­ins eld­is er slát­ur­húsið að verða of lítið og hafa fyr­ir­tæk­in stefnt að því að byggja sam­an aðstöðu til slátr­un­ar. Þótt ríkið og Vest­ur­byggð séu að fjár­festa veru­lega í hafn­ar­mann­virkj­um og land­fyll­ingu á Bíldu­dal, meðal ann­ars með stækk­un laxaslát­ur­húss í huga, virðast fyr­ir­tæk­in ekki telja þá staðsetn­ingu hent­uga.

Knýj­andi þörf á stækk­un

Slát­ur­húsið á Bíldu­dal er rekið á full­um af­köst­um og dug­ar ekki til. Þannig þurfti Arctic Fish að fá er­lent slát­ur­skip til að létta á kví­um sín­um í Dýraf­irði vegna góðs ár­ang­urs í eld­inu og til þess að líf­massi þar færi ekki yfir það sem leyfi heim­ila.

Fyr­ir­tæk­in fengu vind í segl­in þegar hluta­bréf móður­fé­laga þeirra voru skráð í kaup­höll­inni í Ósló og mik­il eft­ir­spurn var eft­ir nýj­um hlut­um. Þau lýstu bæði yfir að þau myndu nota viðbótar­fjármagn til að styrkja innviði, meðal ann­ars vinnslu.

Arn­ar­lax og Arctic Fish gengu sam­eig­in­lega til vinnu við staðar­val enda mik­il sam­legðaráhrif í rekstr­in­um og virt­ist Flat­eyri líta einna best út. Þar á Arctic Fish land og fast­eign­ir sem til stóð að rífa til að rýma fyr­ir upp­bygg­ingu slát­ur­húss. Fyr­ir­tækið ÍS 47 ehf. sem hyggst efla starf­semi sína í firðinum á hús­eign sem ligg­ur að eign­um Arctic Fish og þyrfti einnig að víkja. ÍS 47 og meiri­hluta­eig­andi þess, Íslensk verðbréf, leggj­ast ein­dregið gegn áform­um um upp­bygg­ingu laxaslát­ur­húss á staðnum með þeim rök­um að slík­ur rekst­ur og til­heyr­andi um­svif myndi ógna hags­mun­um og framtíðaráform­um þeirra um eldið.

Þótt húsið sé víkj­andi sam­kvæmt skipu­lagi get­ur Ísa­fjarðarbær ekki tryggt nægj­an­legt at­hafna­rými fyr­ir laxaslát­ur­húsið, að sögn Birg­is Gunn­ars­son­ar bæj­ar­stjóra. Hann seg­ir að enn sé verið að reyna að vinna í mál­inu enda dap­ur­legt ef mik­il­væg at­vinnu­upp­bygg­ing strand­ar á þessu.

Mik­il fjár­fest­ing

Ljóst er að þörf fyr­ir aukna slátrun ýtir á stjórn­end­ur lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna að taka sem fyrst ákv­arðanir um staðsetn­ingu sam­eig­in­legs laxaslát­ur­húss til þess að hægt sé að hefja fyr­ir al­vöru und­ir­bún­ing að bygg­ingu aðstöðunn­ar. Fram­kvæmd­ir þyrftu að hefjast á næsta ári, helst í vor. For­stjór­ar fyr­ir­tækj­anna veita eng­ar upp­lýs­ing­ar um málið á þess­ari stundu.

Mik­il fjár­fest­ing er í laxaslát­ur­húsi. Bygg­ing aðstöðu til að slátra 40 til 50 þúsund tonn­um af laxi á ári gæti kostað 5-6 millj­arða króna og þyrfti um 100 starfs­menn þegar vinnsl­an verður kom­in í full af­köst.

Birg­ir Gunn­ars­son seg­ir mik­il­vægt að laxaslát­ur­hús verði byggt á Vest­fjörðum en vinnsl­an ekki leyst á ann­an hátt. Þannig hald­ist þjón­usta við vax­andi at­vinnu­grein inn­an fjórðungs­ins. Mörg af­leidd störf myndu skap­ast. Það yrði mik­il inn­spýt­ing fyr­ir at­vinnu­lífið.

Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Birg­ir Gunn­ars­son, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðarbæj­ar.

Eiga góða lóð á Vat­neyri

Verði ákveðið að reisa nýtt laxaslát­ur­hús á Pat­reks­firði stend­ur fyr­ir­tækj­un­um til boða lóð á Vat­neyri þar sem stend­ur gam­alt hús sem ým­ist er kennt við Kald­bak eða Straum­nes. Sveit­ar­fé­lagið á húsið og hef­ur því öll rétt­indi í sinni hendi. Þá eru áform um að byggja stór­skipakant á því svæði hafn­ar­inn­ar. Re­bekka Hilm­ars­dótt­ir bæj­ar­stjóri Vest­ur­byggðar seg­ir að beðið sé niður­stöðu í staðar­vali lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna.

Upp­bygg­ing slát­ur­húss á Pat­reks­firði myndi hafa mik­il áhrif þar en Re­bekka minn­ir á að það myndi einnig hafa nei­kvæð áhrif á Bíldu­dal þar sem slátr­un­in fer fram nú. Sömu sögu væri að segja ef slátr­un­in færi annað. Hún seg­ir að unnið sé að viðauka við innviðagrein­ingu til að hægt sé að átta sig á stöðunni á Bíldu­dal, ekki síst hvaða mögu­leik­ar séu á að nýta þær fram­kvæmd­ir sem unnið er að í höfn­inni og land­fyll­ingu.

Rebekka Hilmarsdóttir.
Re­bekka Hilm­ars­dótt­ir. mbl.is/​Sig­urður Bogi
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: