Eigandi fiskeldis á Austfjörðum stækkar

Laxaseiði sett út í sjókvíar hjá Fiskeldi Austfjarða í Berufirði.
Laxaseiði sett út í sjókvíar hjá Fiskeldi Austfjarða í Berufirði. mbl.is//Helgi Bjarnason

Norska fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Måsøval AS, sem á meiri­hlut­ann í aust­firsku fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um Fisk­eldi Aust­fjarða og Löx­um fisk­eldi, hef­ur keypt upp annað norskt fisk­eld­is­fyr­ir­tæki og mun með því auka mjög fram­leiðslu­getu sína.

Måsøval er í grunn­inn fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sem er með höfuðstöðvar á eyj­unni Frøya í Þrænda­lög­um. Það var skráð í kaup­höll­ina í Ósló fyrr á þessu ári og þá bætt­ust við nýir hlut­haf­ar. Fyr­ir­tækið er meiri­hluta­eig­andi Fisk­eld­is Aust­fjarða og Laxa fisk­eld­is og hef­ur verið stefnt að sam­ein­ingu ís­lensku fyr­ir­tækj­anna.

Fyr­ir­tækið sem Måsøval er nú að kaupa starfar und­ir yf­ir­heit­inu Vart­dal In­vest AS en dótt­ur­fyr­ir­tæki þess reka sjókvía­eld­is­stöðvar, seiðaeldi og slát­ur­hús. Kaup­verðið sam­svar­ar um 23 millj­örðum ís­lenskra króna og hluti kaup­verðsins er greidd­ur með því að eig­andi Vart­dal eign­ast hluta­bréf í Måsøval.

Á heimasíðu Måsøval kem­ur fram að kaup­in eru gerð með fyr­ir­vara um samþykki norska sam­keppnis­eft­ir­lits­ins og hlut­hafa­fund­ar.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: