Vinna verðmæt hrogn í styrjueldi á Ólafsfirði

Eldið á Reykjanesi hefur gengið vel síðustu ár og í …
Eldið á Reykjanesi hefur gengið vel síðustu ár og í vor er reiknað með að þær fyrstu hrygni. Ljósmynd/Aðsend

Í byrj­un næsta árs verður belti brugðið á búk um 160 styrja og þær hífðar upp úr kör­um hjá Stolt Sea Farm á Reykja­nesi. Ferðinni þaðan er heitið til Ólafs­fjarðar þar sem Hið Norðlenzka Styrju­fjelag hyggst hefja eldi á styrj­um. Fyrstu styrj­urn­ar eiga að hrygna strax næsta vor og góður markaður er sagður fyr­ir styrju­hrogn eða kaví­ar.

Um átta ár eru liðin frá því að Stolt Sea Farm hóf til­rauna­eldi á styrj­um á Reykja­nesi og var meðalþyngd fisk­anna í haust um 65 kíló. Megin­áhersl­an hjá Stolt Farm hef­ur verið á eldi senegal­flúru og fyr­ir­tækið er nú að hefja eldi á gull­inrafa, þannig að styrj­urn­ar þurfa að víkja.

Styrju­fjelagið hef­ur fengið leyfi frá há­skól­an­um í Brem­er­haven til að nota einka­leyfi hans til að strjúka hrogn og svil úr fisk­in­um með ákveðnum hætti, að sögn Ásgeirs Loga Ásgeirs­son­ar, stjórn­ar­manns í fé­lag­inu. Styrj­urn­ar eiga að geta gefið hrogn annað hvert ár. Hrogn­in eru um 10% af þyngd hrygn­unn­ar, þannig að úr hverri styrju geta komið frá sex og upp í tæp 20 kíló af hrogn­um. Við vista­skipt­in verða styrj­urn­ar vigtaðar, ör­merkt­ar og greind­ar. Ásgeir Logi bend­ir á að eins og í sauðfjár­rækt vilji bænd­ur fleiri gimbr­ar en hrúta.

Átta styrj­ur í hverri ferð

Styrj­urn­ar verða flutt­ar í súr­efnistönk­um á flutn­inga­bif­reiðum norður eft­ir ára­mót, allt að átta í hverri ferð. Verið er að koma upp aðstöðu í gömlu salt­fisk­húsi og unnið hörðum hönd­um að því að gera aðstöðuna full­nægj­andi.

Kór­ónufar­ald­ur­inn hef­ur aðeins hægt á því að nauðsyn­leg­ur búnaður ber­ist til lands­ins, en Ásgeir á von á að hann verði kom­inn upp á næstu vik­um. Sömu­leiðis hef­ur verið unnið að því að afla til­skil­inna leyfa, m.a. hjá sveit­ar­fé­lag­inu og Mat­væla­stofn­un.

Nóg er af heitu og köldu vatni í Ólafs­firði, en styrj­urn­ar verða ald­ar við 12-14 gráðu hita. Fyrst í stað er miðað við að hrogn verði fryst í kílóapakkn­ing­um og seld til frek­ari vinnslu. Þannig fá­ist 160-170 þúsund krón­ur fyr­ir hvert kíló. Ásgeir seg­ir að í framtíðinni verði von­andi hægt að full­vinna hrogn­in og pakka í smærri og verðmæt­ari ein­ing­ar.

Aðgang­ur fyr­ir ferðamenn

Ekki ligg­ur fyr­ir hversu mörg framtíðar­störf eldið skap­ar, en hrogna­vinnsl­an er mannafls­frek. Sömu sögu er að segja um seiðaeldi, en ráðgert er að fá nýja kyn­slóð til hrygn­ing­ar eft­ir 7-8 ár og ár­lega eft­ir það. Þá er í bíg­erð að í gamla salt­fisk­hús­inu verði aðstaðan þannig að ferðamenn geti fylgst með styrj­un­um í kör­um sín­um.

28 aðilar, fyr­ir­tæki og ein­stak­ling­ar, standa að Fram­fara­fé­lagi Ólafs­fjarðar og er Styrju­fjelagið af­sprengi þess. Eig­end­ur síðar­nefnda fé­lags­ins eru Fram­fara­fé­lagið og fé­lag í eigu Eyþórs Eyj­ólfs­son­ar, sem starfar nú í Jap­an. Hann kom að inn­flutn­ingi styrj­anna hjá Stolt Sea Farm á sín­um tíma.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: