Grunur um laxaveiru í sjókví

Laxeldiskvíar.
Laxeldiskvíar. mbl.is/Þorgeir

Mat­væla­stofn­un hef­ur staðfest, að rök­studd­ur grun­ur sé að ISA veira, sem get­ur valdið  sjúk­dómn­um blóðþorra í laxi sé í einni kví í sjókví­um Laxa fisk­eld­is á stöðinni Gripalda í Reyðarf­irði. Veir­an er skaðlaus mönn­um og berst ekki með fiskaf­urðum.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu frá Jens Garðari Helga­syni, fram­kvæmda­stjóra Laxa fisk­eld­is, að stöðn hafi verið ein­angruð og unnið sé að því að taka út all­an fisk sem er í viðkom­andi kví.  All­ar aðgerðir og áfram­hald­andi aðgerðir séu unn­ar í nánu sam­starfi og eft­ir fyr­ir­mæl­um Mat­væla­stofn­un­ar.

Mat­væla­stofn­un seg­ir, að ef sú grein­ing sem nú ligg­ur fyr­ir reyn­ist rétt með staðfest­ingar­próf­um sé þetta í fyrsta sinn sem sjúk­dómsvald­andi af­brigði ISA-veirunn­ar grein­ist í laxi hér á landi. Frá því fyrsta til­felli blóðþorra var staðfest í Nor­egi árið 1984 hef­ur veir­an einnig valdið klín­ísk­um sjúk­dómi hjá fjöl­mörg­um öðrum lax­eld­isþjóðum. Síðasta til­felli í Fær­eyj­um átti sér stað 2016/​17 þegar klín­ísk sýk­ing kom upp í stakri kví en all­ur ann­ar fisk­ur reynd­ist heil­brigður og var slátrað til mann­eld­is. 

Á vef MAST seg­ir, að ISA-veir­an til­heyri in­flú­ensu­veir­um af fjöl­skyld­unni Ort­homyxoviri­dae og búi yfir flest­um þeim eig­in­leik­um in­flú­ensu­veira sem við þekkj­um frá bæði spen­dýr­um og fugl­um. Þekkt séu tvö af­brigði ISA-veirunn­ar. Annað er mein­virkt og veld­ur misal­var­legri sýk­ingu og af­föll­um (ISA-del), en hitt er góðkynja af­brigði sem aldrei veld­ur sjúk­dómi eða tjóni (ISA-HPR0).

„Far­alds­fræðileg­ar rann­sókn­ir hafa sýnt að góðkynja af­brigði veirunn­ar er mun út­breidd­ara en áður var talið og finnst að öll­um lík­ind­um alls staðar í um­hverfi laxa, bæði hjá villt­um laxi og í eld­is­um­hverfi. Lengi hef­ur legið fyr­ir og staðfest að hið góðkynja af­brigði veirunn­ar er til staðar hér við land og hef­ur ef­laust fylgt laxi frá ör­ófi alda. Þess ber einnig að geta að klín­ísk ein­kenni hafa aldrei verið staðfest í villt­um laxi á heimsvísu, jafn­vel þó hin mein­virka gerð veirunn­ar (ISA-del) hafi verið ein­angruð úr slík­um fiski. Sér­fræðing­um ber sam­an um að hið mein­virka af­brigði verði til við stökk­breyt­ingu á hinu mein­lausa af­brigði. Slík­ar stökk­breyt­ing­ar eru afar sjald­gæf­ar, en ár­leg áhætta á sýk­ingu með stökk­breyttu mein­virku af­brigði hef­ur verið reiknað til 0,7% fyr­ir dæmi­gert sjókvía­eld­is­svæði,“ seg­ir á vef MAST.

ISA-veir­an upp­götvaðist við krufn­ingu og sýna­töku í kjöl­far vax­andi óút­skýrðra affalla í kví G7. Ákvörðun hef­ur verið tek­in um að af­lífa lax úr viðkom­andi kví við fyrsta tæki­færi og farga úr­gangi með trygg­um hætti. Lax sem al­inn er í öðrum kví­um á eld­is­svæðinu virk­ar heil­brigður, fóðrun eðli­leg og vöxt­ur góður. Fisk­ur í ná­granna­kví­um verður sett­ur und­ir hert eft­ir­lit og skiman­ir af ör­ygg­is­ástæðum.

Til­rauna­stöð HÍ í meina­fræði að Keld­um vinn­ur nú að nán­ari staðfest­ingu og skil­grein­ingu á arf­gerð veirunn­ar. Í fyrstu verða greind veiru­sýni send til Leipzig í Þýskalandi til sér­stakr­ar raðgrein­ing­ar, en einnig verður unnið í sam­vinnu við rann­sókna­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins í veiru­sjúk­dóm­um lag­ar­dýra í Dan­mörku.

Mat­væla­stofn­un hef­ur í varúðarskyni sett dreif­ing­ar­bann á starfs­stöð fyr­ir­tæk­is­ins við Gripaldi í Reyðarf­irði sem mun gilda þar til slátrað hef­ur verið úr sjókví­un­um og svæðið sett í hvíld.

mbl.is