Flokks­stofn­an­ir funda um stjórnarsáttmálann

Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins í Valhöll.
Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins í Valhöll. mbl.is/Óttar

Flokk­stofn­an­ir Vinstri Grænna, Sjálf­stæðis­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins sitja nú á fund­um um stjórn­arsátt­mála nýrr­ar rík­is­stjórn­ar. 

Leggi þær bless­un sína yfir stjórn­ar­sam­starfið verður boðað til þing­flokks­funda stjórn­ar­flokk­anna í fyrra­málið þar sem for­menn flokk­anna munu hver fyr­ir sig leggja fram til­lögu að skip­an ráðherra­embætta á veg­um flokk­anna.

Þegar mbl.is ræddi við Birgi Ármanns­son, þing­flokks­formann Sjálf­stæðis­flokks­ins, og Bjarkey Ol­sen Gunn­ars­dótt­ir, þing­flokks­formaður Vinstri grænna, töldu þau ólík­legt að nokkuð yrði flokk­stofn­un­um til fyr­ir­stöðu að samþykkja stjórn­arsátt­mál­ann. 

Bjarkey Ol­sen Gunn­ars­dótt­ir, þing­flokks­formaður Vinstri grænna, á Grand hótel.
Bjarkey Ol­sen Gunn­ars­dótt­ir, þing­flokks­formaður Vinstri grænna, á Grand hót­el. mbl.is/Ó​ttar

Ljós­mynd­ari mbl.is náði þess­um mynd­um af fund­um Vinstri Grænna og Sjálf­stæðis­flokks­ins sem hóf­ust fyr­ir stuttu.

Til stend­ur að óbreyttu að hin nýja rík­is­stjórn verði kynnt á blaðamanna­fundi á morg­un kl. 13, þar sem grein verður gerð fyr­ir nýj­um stjórn­arsátt­mála, breyttri skip­an ráðuneyta og hverj­ir muni gegna ráðherra­embætt­um í stjórn­inni.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins. mbl.is/Ó​ttar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins. mbl.is/Ó​ttar
Ágústa Guðmundsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokks í Reykjavík suður, mætir til fundar …
Ágústa Guðmunds­dótt­ir, varaþingmaður Sjálf­stæðis­flokks í Reykja­vík suður, mæt­ir til fund­ar í dag.
mbl.is