Minni fiskeldisfyrirtækin á Vestfjörðum og ferðaþjónustu- og sjávarútvegsfyrirtæki á Suðureyri hafa kynnt fyrir bæjarráði Ísafjarðarbæjar sameiginlegar hugmyndir um að byggja upp laxasláturhús á væntanlegri uppfyllingu við höfnina á Suðureyri. Ferðaþjónustan Fisherman hefur fengið heimild bæjaryfirvalda til að gera uppfyllingu við Brjótinn og skapa þar aðstöðu fyrir sjávarútvegs- og þjónustufyrirtæki.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Verkefnið er kallað Brjóturinn, klasaverkefni á Suðureyri. Að því standa Íslensk verðbréf, Hábrún, ÍS 47, Fisherman, Íslandssaga og Klofningur.
Í kynningu fyrirtækjanna fyrir bæjarráði Ísafjarðarbæjar er sett upp dæmi um laxasláturhús með 10 þúsund tonna afkastagetu. Myndi það skapa mikil umsvif og tekjur á staðnum. Er þetta svipuð stærð og laxasláturhús Arnarlax á Bíldudal sem er að verða of lítið fyrir slátrun þess fyrirtækis og Arctic Fish.
Virðist því gert ráð fyrir að annað af stóru laxeldisfyrirtækjunum láti slátra þarna fyrir sig.