Slátrun úr sjókvíum flýtt

Laxeldiskvíar. Myndin er úr safni.
Laxeldiskvíar. Myndin er úr safni. mbl.is/Þorgeir

Veir­an sem get­ur valdið blóðþorra í laxi hef­ur fund­ist í dauðum fiski í fleiri kví­um hjá Löx­um fisk­eldi á Gripalda í Reyðarf­irði. Þótt ekki hafi orðið vart við að fisk­ur­inn sé sýkt­ur hef­ur verið ákveðið að flýta held­ur slátrun úr öll­um kví­um á Gripalda í ör­ygg­is­skyni og hvíla svæðið.

Þetta kem­ur fram í Morg­un­blaðinu í dag.

Mein­virkt af­brigði staðfest

Mat­væla­stofn­un fékk í gær niður­stöður úr raðgrein­ingu á sýn­um sem tek­in voru í sýktu laxa­kvínni hjá Löx­um fisk­eldi í Reyðarf­irði. Gísli Jóns­son, dýra­lækn­ir fisk­sjúk­dóma, seg­ir þær staðfesta að þar sé á ferðinni hið mein­virka af­brigði ISA-veirunn­ar sem veld­ur blóðþorra, eins og ís­lensk­ir sér­fræðing­ar höfðu slegið föstu. Er það í fyrsta skipti sem sjúk­dóm­ur­inn er staðfest­ur hér á landi. Strax var gengið í að slátra öll­um laxi upp úr kvínni og farga hon­um. Gísli seg­ir að rann­sókn­ar­fólk á Til­rauna­stöð Há­skóla Íslands í meina­fræði á Keld­um sé í fram­hald­inu að at­huga fingra­för veirunn­ar, hvort þau finn­ist í ná­granna­lönd­um eða hvort stökk­breyt­ing­in hafi orðið í kvínni í Reyðarf­irði eins og Gísli hef­ur talið lík­leg­ast.

Sýni sem tek­in voru úr dauðum fiski í ná­læg­um kví­um sýna að ISA-veir­an er þar. Ekki er vitað hvort þar sé að finna mein­virka af­brigðið sem veld­ur blóðþorra. Lax­inn lít­ur vel út, að sögn Gísla, og sýn­ir ekki sjúk­dóms­ein­kenni. Eigi að síður hef­ur verið ákveðið að flýta slátrun upp úr þeim tíu kví­um sem eft­ir eru á Gripalda. Stefnt er að því að slátrun verði lokið fyr­ir páska en ef sjúk­dóm­ur­inn hefði ekki komið upp hefði verið slátrað í áföng­um fram á næsta haust. Seg­ir Gísli að með þessu ná­ist að hvíla svæðið í heilt ár, áður en farið verður að huga að út­setn­ingu seiða þar að nýju.

At­huga með slát­ur­skip

Í kví­un­um er eft­ir um það bil 1,1 millj­ón laxa, sam­tals um fjög­ur þúsund tonn að þyngd. Fisk­ur­inn verður unn­inn til mann­eld­is enda er veir­an skaðlaus fólki og berst ekki með afurðum. Lax­ar fisk­eldi eru að huga að því að fá er­lent slát­ur­skip til aðstoðar, einkum til að slátra minnsta lax­in­um sem síður hent­ar í vinnslu­línu laxaslát­ur­húss Bú­landstinds á Djúpa­vogi. Lax­inn verður unn­inn um borð og landað í Dan­mörku.

Gísli tek­ur fram að rann­sókn­ir sýni að blóðþorri legg­ist ekki á villta laxa­stofna.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: