Hægt að mæla loðnustofninn á smábátum

Hugsanlega verður hægt í framtíðinni að sinna hluta af rannsóknum …
Hugsanlega verður hægt í framtíðinni að sinna hluta af rannsóknum á loðnustofninum á smábátum en hingað til hafa mælingar verið framkvæmdar á stærri skipum. mbl.is/sisi

Haf­rann­sókna­stofn­un hef­ur tek­ist að sýna fram á að hægt sé að sinna berg­máls­mæl­ing­um á hluta af hrygn­ing­ar­stofni loðnu á af­mörkuðum svæðum á smá­bát­um. Til­rauna­mæl­ing­ar fóru fram í sum­ar og hef­ur skýrsla um verk­efnið verið birt á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Fram kem­ur að farið var í fjóra leiðangra á tveim­ur smá­bát­um í Eyjaf­irði, Skjálf­anda­flóa, Öxarf­irði og Þistil­f­irði í maí og júní 2021 í þeim til­gangi að afla gagna fyr­ir rann­sókn­ir á hrygn­ing­ar­göngu loðnu. Benda mæl­ing­ar til þess að „ekki hafi mikið magn loðnu gengið til hrygn­ing­ar á viðkom­andi svæðum fyr­ir norðan land á þeim tíma sem rann­sókn­in fór fram,“ seg­ir í skýrsl­unni.

Meg­in hrygn­ing loðnu við Ísland fer fram við suður- og vest­ur­strönd­ina í mars og apríl en þekkt hef­ur verið að loðna hrygnt fyr­ir norðan land fram eft­ir sumri. Skort­ur hef­ur hins veg­ar verið á upp­lýs­ing­um um út­breiðslu og um­fang hrygn­ing­ar­inn­ar, en með mæl­ing­un­um var aflað upp­lýs­inga um magn, ástand og fram­vindu hrygn­ing­ar loðnunn­ar á svæðinu.

Þurfa nokk­ur ár

„Líf­massi kynþroska loðnu mæld­ist sam­tals 505 tonn í berg­máls­mæl­ing­un­um. Því má ætla að ekki hafi mikið magn loðnu gengið til hrygn­ing­ar á viðkom­andi svæðum fyr­ir norðan land á þeim tíma sem rann­sókn­in fór fram. Ein­hver hrygn­ing átti sér stað fyr­ir norðan land að minnsta kosti fram í júní en um var að ræða mjög lítið magn ef miðað er við stærð hrygn­ing­ar­stofns loðnu við Ísland og má því ætla að um óveru­legt fram­lag til heild­ar­stofns­ins hafi verið að ræða,“ seg­ir í skýrsl­unni.

Þá eru vís­bend­ing­ar um að loðnu­gengd á þess­um svæðum sem mæl­ing­ar fóru fram hafi hugs­an­lega verið meiri und­an­far­in ár. „Sýnt var fram á að hægt er að nota smá­báta með rétt­an búnað í slík­ar rann­sókn­ir en skoða þarf göng­ur og hrygn­ingu loðnu með þess­um hætti í nokk­ur ár til að meta breyti­leika í göng­um og skilja í sam­hengi við t.d. ástandið í haf­inu.“

At­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneytið styrkti verk­efnið sem hluta fjár­fest­inga­átaks Alþing­is vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

mbl.is