Fyrst á heimsvísu að ala loðnu í eldisstöð

Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar, Agnar Steinarsson og Ragnar Jóhannsson, fóðra loðnur í …
Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar, Agnar Steinarsson og Ragnar Jóhannsson, fóðra loðnur í eldisstöðinni. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Í til­rauna­eld­is­stöð Haf­rann­sókna­stofn­un­ar í Grinda­vík hef­ur nú í fyrsta sinn á heimsvísu tek­ist að ala loðnu í eld­is­stöð. Loðnu­seiðin sem þar hafa verið alin eru nú að meðaltali tíu senti­metr­ar á lengd og bú­ist er við því að þau hrygni í stöðinni næsta sum­ar, rúm­lega árs­göm­ul.

Agn­ar Stein­ars­son, sér­fræðing­ur hjá Haf­rann­sókna­stofn­un, flyt­ur á morg­un, fimmtu­dag, er­indi um þess­ar eld­istilraun­ir með loðnu. Mál­stof­an verður hald­in í fund­ar­sal á 1. hæð að Fornu­búðum 5 í Hafnar­f­irði og hefst klukk­an kl. 12.30.

Náðu að vaxa og dafna

Í kynn­ingu á verk­efn­inu kem­ur fram að í vor náðu starfs­menn Hafró, í góðri sam­vinnu við loðnu­sjó­menn, að frjóvga og klekja út loðnu­hrogn­um og hefja til­rauna­eldi á loðnul­irf­um. Frá þessu var greint í maí.

Fóðrað var með ör­smáu lif­andi dýra­svifi og fljót­lega kom í ljós að lirf­urn­ar náðu að vaxa og dafna í stöðinni. Rúm­um þrem­ur mánuðum síðar var búið að venja tvö þúsund seiði á þurr­fóður.

Loðnan er lyk­il­teg­und

Í er­ind­inu verða sýnd­ar mynd­ir og mynd­skeið af þrosk­un­ar­ferli seiðanna og skýrt frá niður­stöðum mæl­inga. Greint verður frá nýj­um rann­sókna­klefa stöðvar­inn­ar og fyr­ir­huguðum rann­sókn­um á áhrif­um súrn­un­ar á vöxt og af­komu loðnul­irfa. Þá verður fjallað um mögu­leg­ar eld­is­rann­sókn­ir á loðnu á kom­andi árum.

„Loðna er lyk­il­teg­und í fæðuvist­kerf­inu í haf­inu í kring­um Ísland og mik­il­vægt er að skilja hvaða áhrif lofts­lags­breyt­ing­ar gætu haft á vöxt, fjölg­un og út­breiðslu teg­und­ar­inn­ar á næstu ára­tug­um,“ seg­ir í kynn­ing­unni.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: