Ákvæði um gjaldtöku vegna fiskeldis

LAgt er til að í ný lög verði veitt sértsök …
LAgt er til að í ný lög verði veitt sértsök heimild til gjaldtöku af fiskeldisstarfsemi. mbl.is/Helgi Bjarnason

Áformað er að leggja fram frum­varp til breyt­inga á hafna­lög­um og hef­ur það verið kynnt í sam­ráðsgátt. Meðal ann­ars verður kveðið á um ra­f­ræna vökt­un í höfn­um. Er tal­in þörf á ákvæði þessa efn­is til að vinnsla per­sónu­upp­lýs­inga bygg­ist á viðhlít­andi laga­stoð en ekki er að finna ákvæði þessa efn­is í hafna­lög­um.

Þá verður í frum­varp­inu lagt til ákvæði um gjald­töku hafna vegna fisk­eld­is­starf­semi. Er laga­grund­völl­ur slíkr­ar gjald­töku tal­inn óskýr sam­kvæmt gild­andi lög­um og hef­ur grund­vall­ast á ákvæðum hafna­laga um afla­gjöld og fram­kvæmd við gjald­töku verið mis­mun­andi eft­ir sveit­ar­fé­lög­um, seg­ir í kynn­ingu á frum­varp­inu.

Inn­leiðing reglu­gerðar

Þar seg­ir að með frum­varp­inu verði lagðar til laga­breyt­ing­ar til inn­leiðing­ar á ákvæðum reglu­gerðar ESB um að setja ramma um veit­ingu hafn­arþjón­ustu og um sam­eig­in­leg­ar regl­ur um gagn­sæi í fjár­mál­um fyr­ir hafn­ir. Reglu­gerðin nær til hafna sem eru hluti af sam­evr­ópska flutn­inga­net­inu.

Breyt­ing­ar þess­ar snúa m.a. að því að setja ákvæði um það þegar ann­ar aðili en höfn býður upp á þjón­ustu í höfn­um, mögu­leika hafn­ar eða lög­bærs yf­ir­valds til að gera lág­marks­kröf­ur til ut­anaðkom­andi aðila til að bjóða upp á þjón­ustu við skip eða heim­ild­ir til að tak­marka fjölda þeirra sem bjóða upp á þessa þjón­ustu og að hafn­ar­stjórn ráðfæri sig við not­end­ur hafna við álagn­ingu gjalda.

Vakt­stöð sigl­inga í hafna­lög

Meðal ann­ars verður lögð til heim­ild fyr­ir hafn­ir til að veita um­hverfisafslætti frá hafn­ar­gjöld­um. Mun sú heim­ild ná til allra hafna hér á landi.

Þá verður lögð til breyt­ing á hafna­lög­um um stjórn­sýslukær­ur og lögð til skil­grein­ing á hafn­ar­svæðum þannig að sett verði fram viðmið um hvernig beri að af­marka hafn­ar­svæði á sjó í hafn­ar­reglu­gerðum.

Lagt verður til að efni laga um vakt­stöð sigl­inga, hafn­sögu og leiðsögu verði færð í hafna­lög. Enn frem­ur verða lagðar til breyt­ing­ar á verka­skipt­ingu Sam­göngu­stofu og Vega­gerðar­inn­ar á sviði hafna­mála, m.a. er lýt­ur að eft­ir­liti með hönn­un og bygg­ingu hafn­ar­mann­virkja.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: