Ice Fish Farm yfirtekur Laxa

Ice Fish Farm er móðurfélag Fiskeldis Austfjarða.
Ice Fish Farm er móðurfélag Fiskeldis Austfjarða. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Norska fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Ice Fish Farm AS yf­ir­tek­ur fyr­ir­tækið Lax­ar fisk­eldi. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu norsku kaup­hall­ar­inn­ar í dag. 

Þar seg­ir að meiri­hluti hlut­hafa Laxa Fisk­eld­is ehf. hafi í dag kom­ist að sam­komu­lagi um greiða at­kvæði með kaup­um Ice Fish Farm á Löx­um. Kaup­in verða greidd með nýj­um bréf­um í Ice Fish Farm.

Viðræður um mögu­lega yf­ir­töku hóf­ust í sum­ar. Måsøval Eiendom AS, Skinn­ey Þinga­nes hf. og  Eggja­hvíta ehf, eiga meiri­hluta Laxa fisk­eld­is. 

Ice Fish Farm er móður­fé­lag Fisk­eld­is Aust­fjarða en Lax­ar fisk­eldi er fisk­eld­is­fyr­ir­tæki sem elur lax og rek­ur þrjár seiðaeld­is­stöðvar í Ölfusi, sjókvía­eldi í Reyðafirði og slát­ur­hús á Djúpa­vogi. Skrif­stof­ur Laxa eru í Kópa­vogi og Eskif­irði.

mbl.is